Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 33. fundur - 30. ágúst 2016

Dagskrá:

2.  

Sorpmál 2017 - 2015020030

 

Umræður um framtíðartilhögun sorpmála í Ísafjarðarbæ.

 

Tæknideild falið að vinna málið áfram og leggja fram drög að aðgerðaráætlun fyrir næsta fund.

 

   

3.  

Bílastæði innan þéttbýlis - 2016030025

 

Umræður um bílastæði í þéttbýli í tengslum við fjölgun ferðamanna og bílaleigubíla.

 

Nefndin leggur til að bílastæði á Wardstúni verði fest í sessi og tæknideild skoði möguleika á að bæta við tímabundnu bílastæði á óúthlutaðri lóð á Suðurtanga.

 

   

4.  

Tjöld og húsbílar innan þéttbýli í Ísafjarðarbæ - 2016020052

 

Lögð fram gildandi lögreglusamþykkt Ísafjarðarbæjar.

 

Nefndin felur umhverfisfulltrúa að boða til fundar með fulltrúum Lögreglustjórans á vestfjörðum.

 

   

5.  

Göngustígar í Ísafjarðarbæ - 2016070002

 

Umhverfisfulltrúi leggur fram teikningar að göngustígakerfi í nágrenni Ísafjarðar.

 

Nefndin felur tæknideild að gera áætlun um aðgerðir í göngustígum og kostnaðargreina nokkrar útfærslur fyrir næsta fund.

 

   

6.  

Strandlínan á Ísafirði, Eyrin í fortíð og nútíð - 2015100021

 

Lagt fram erindi Margrétar Birnu Auðunsdóttur og Heiðu Maríu Loftsdóttur um strandlínu á Ísafirði. Erindinu var vísað til nefndarinnar frá Hátíðarnefnd.

 

Nefndin óskar eftir nánari kynningu á útfærslum og kostnaði við verkefnið.

 

   

8.  

Brenna á Suðurtanga verslunarmannahelgi 2016 - 2016070052

 

Umræða um skipulagðar brennur í Ísafjarðarbæ.

 

Nefndin telur augljóst að ekki hafi verið farið eftir þeim reglum sem settar eru í tímabundnu starfsleyfi fyrir brennu, gefið út af Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða 25. júlí 2016, til handa Mýrarboltafélagi Íslands. Umhverfisnefnd telur rétt að beina því til Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða að séð verði til þess að farið verði eftir settum reglum um brennur í landi Ísafjarðarbæjar.

 

   

1.  

Ósk um samstarf við Ísafjarðarbæ - 2016080022

 

Bæjarráð vísar til umsagnar umhverfis- og framkvæmdanefndar erindi Dýraverndunarfélagsins Villikatta, dags. 14. ágúst, þar sem óskað er eftir samstarfi við Ísafjarðarbæ um mannúðlegar leiðir til að stemma stigu við fjölgun villi- og vergangskatta.

 

Nefndin tekur jákvætt í erindið en bendir á að fylgja þurfi samstarfssamningur og kostnaðaráætlun.

 

   

7.  

Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027

 

Lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög), 674. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 31. ágúst nk.

 

Nefndin gerir ekki athugasemd við frumvarpið.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40

 

 

Nanný Arna Guðmundsdóttir

 

Gunnar Jónsson

Kristín Hálfdánsdóttir

 

Ralf Trylla

Brynjar Þór Jónasson

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?