Stjórn skíðasvæðis - 27. fundur - 28. maí 2008

Á fundinn mættu: Steingrímur Einarsson, formaður, Arna Lára Jónsdóttir, Hermann Hermannsson, í stað Þórunnar Pálsdóttur, Jakob Tryggvason, varamaður í stjórn, og forstöðumaður skíðasvæðis Úlfur Guðmundsson. Fundargerð ritaði Steingrímur Einarsson.



Þetta var gert.





1. Nýframkvæmdir á skíðasvæðunum.


Farið yfir stöðu fyrirhugaðra framkvæmda á skíðasvæðum í sumar og lagður fram listi frá umsjónarmanni eigna Ísafjarðabæjar, Jóhanni Bæring Gunnarssyni, um nauðsynlegar nýframkvæmdir vegna ársins 2008.


Forstöðumanni skíðsvæðanna falið að leita eftir tilboðum, í samráði við tæknideild bæjarins, í þau verk sem  nauðsynlegt er talið að farið verði í sumarið 2008, s.s. drenun á barnasvæðinu í Tungudal ofl..





2. Viðhald búnaðar skíðasvæðanna 2008.


Lagður fram til kynningar listi yfir nauðsynlegt viðhald skíðasvæðanna sumarið 2008. Ljóst að mikil vinna er framundan vegna opnunar skíðsvæðanna 2008/2009.


Forstöðumanni falið að kostnaðargreina framkvæmdir og leita eftir tilboðum í viðhaldsframkvæmdir.   





3. Staða fjármála skíðasvæðisins. 


Lögð fram til kynningar útskrift fjárhagsbókhalds skíðasvæðisins dags. 28.05.08. og hún yfirfarin. Tekjur skíðasvæðanna hafa aukist um tæp 40% á milli ára. Launakostnaður hefur aukist nokkuð m.a. vegna landsmóts og meiri kostnaðar en reiknað var með við Fossavatnsgönguna. Opnunardögum hefur fjölgað.


Formanni stjórnar falið að vinna að greiðsluáætlun í samvinnu við forstöðumann svæðanna vegna áranna 2008 / 2009.





4. Bílamál forstöðumanns.


Samkvæmt samningi við forstöðumann ber Ísafjarðarbæ að sjá honum fyrir bifreið  til afnota. Vonast stjórnin til þess að þeir er málið heyrir undir sjái til þess að staðið verði við samninginn.


Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt.  Fundi slitið kl. 12:45.


Steingrímur Einarsson, formaður.


Arna Lára Jónsdóttir.


Hermann Hermannsson.


Jakob Tryggvason.


Úlfur Guðmundsson, forstöðumaður.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?