Skipulags- og mannvirkjanefnd - 289. fundur - 15. maí 2008

Mættir: Svanlaug Guðnadóttir, formaður, Albertína Elíasdóttir, Sæmundur Kr.  Þorvaldsson, Benedikt Bjarnason og Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs sem var ritari fundarins.


Sigurður Mar Óskarsson mætti ekki og enginn í hans stað.



1. Ráðning í starf umhverfisfulltrúa Ísafjarðarbæjar. (2008-03-0048)


Gerður Eðvarsdóttir, mannauðsstjóri Ísafjarðarbæjar, gerði grein fyrir umsóknum vegna ráðningar í starf umhverfisfulltrúa Ísafjarðarbæjar.


Umhverfisnefnd lagði til við bæjarstjórn á 288. fundi sínum þann 14. maí sl. að Kristjana Einarsdóttir yrði ráðin í starfið, hún hefur nú dregið umsóknina til baka.


Meirihluti umhverfisnefndar leggur til við bæjarstjórn að Ralf Trilla verði ráðinn í starf umhverfisfulltrúa að fenginni umsögn frá mannauðsstjóra.


Umhverfisnefnd hvetur bæjarstjórn til að flýta vinnu við endurskoðun á bæjarmálasamþykkt varðandi mannaráðningar.


Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt.  Fundi slitið kl. 8:40.


Svanlaug Guðnadóttir, formaður.


Albertína Elíasdóttir. 


Sæmundur Kr. Þorvaldsson. 


Benedikt Bjarnason. 


Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?