Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis - 7. fundur - 10. október 2011

Vegna vinnslu þarfagreiningar fyrir bygginguna óskaði formaður nefndarinnar eftir fundi með stjórn Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.

 

Þetta var gert:

 

1.         Heimild ríkisstjórnar Íslands til byggingar 30 rýma hjúkrunarheimilis á Ísafirði. 2008-06-0016.

Þann 23. september síðastliðinn gaf ríkisstjórn Íslands út heimild til byggingar 30 rýma hjúkrunarheimilis á Ísafirði. 

 

2.         Samstarf við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, um úrvinnslu á þarfagreiningu     byggingarinnar.  2008-06-0016.

Rætt um minnisblað frá Verkís þar sem fjallað er um þjónustuþætti á hjúkrunarheimili og staðsetningu þeirra.

 

3.         Samstarf við Heilbrigísstofnun Vestfjarða, um rekstur, þjónustu og      aðstöðusköpun.  2008-06-0016.

Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að eiga samráð og samstarf um aðstöðusköpun, þjónustu og rekstur hjúkrunarheimilisins, enda fjölmargir þættir í starfsemi heimilisins og sjúkrahússins nátengdir. Stefnt er að áframhaldandi samvinnu og úrvinnslu á þessum þáttum. Ennfremur telja fundarmenn að mikilvægt sé að farið verði kynnisferð til að skoða ný hjúkrunarheimili til að efla undirstöðuþekkingu á verkefninu.

 

4.         Staðsetning hjúkrunarheimilis. 2008-06-0016.

Rætt um mögulega staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis.

 

5.         Önnur mál. 2008-06-0016.

A.        Rætt um næstu skref s.s. samning við Velferðarráðuneytið um byggingu hjúkrunarheimilis þ.m.t. fjármögnun byggingarinnar.  Nefndin leggur til við bæjarstjórn að skrifað verði undir samninginn.

B.        Félög eldri borgara á Ísafirði og í Önundarfirði hafa óskað eftir að eiga fulltrúa í nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis.  Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar.  

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl.   10:05

 

Eiríkur Finnur Greipsson, formaður.

Sigurður Pétursson.                                                                

Svanlaug Guðnadóttir.

Daníel Jakobsson.                                                                  

Hörður Högnason.

Jóhann Birkir Helgason.                                                         

Margrét Geirsdóttir.

Þröstur Óskarsson.                                                                 

Þorsteinn Jóhannesson.

Sigrún Camilla Halldórsdóttir.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?