Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis - 30. fundur - 29. ágúst 2013

Þetta var gert:          

 

1.      Hjúkrunarheimlið Eyri, vettvangsferð. 2011-12-0009.

Svanlaug Guðnadóttir og Ágúst Gíslason kynntu vettvangsverð sem farin var 20. ágúst sl. í hjúkrunarheimilin Hamra í Mosfellsbæ og Ísafold í Garðabæ.  Jafnframt kynnti Svanlaug heimsókn sína á hjúkrunarheimilið á Akureyri.

 

2.      Hjúkrunarheimilið Eyri, frágangur innanhúss. 2011-12-0009.

Byggingarstjóri kynnti þau mál sem nefndin þyrfti að taka ákvörðun um.

  • Lyftubrautir í íbúðir: nefndin samþykkir að setja upp festingar í allar íbúðir ásamt einni braut í sjúkrabað í sameiginlegu rými.
  • Lyklakerfi: nefndin samþykkir að sett verði upp aðgangsstýrikerfi í hjúkrunarheimilið.
  • Bjöllukerfi: nefndin samþykkir að sett verði upp bjöllukerfi í hjúkrunarheimilið.
  • Fellihurðir í iðjuþjálfun: nefndin samþykkir að hafa tvo felliveggi án hljóðkrafna.
  • Lýsing: nefndin samþykkir tillögu arkitekts að óbeinni lýsingu, byggingarstjóra falið að ganga frá vali lýsingar í samráði við hönnuði. 
  • Loftaklæðningar: Nefndin samþykkir að hafa kerfisloft á göngum, timburklæðningu í loftum í íbúðum og hluta af sameiginlegu rými.
  • Gluggatjöld og brautir: nefndin samþykkir að setja upp gardínubrautir inn í allar íbúðir ásamt sóltjöldum (screen).
  • Loftræsikerfi: Nefndin felur byggingarstjóra að ræða við hönnuði um útfærslu á loftræsikerfi.
  • Munahólf í innréttingu í íbúðum: nefndin samþykkir að hafa læst munahólf í innréttingu í íbúðum.
  • Gólfefni: nefndin samþykkir að hafa vinyl dúk á blautrýmum, linoleum dúk í íbúðum og göngum, viðarparket í kjörnum.
  • Raflagnir:  nefndin ræddi niðurröðun á tækjum með tilliti til tengla.

 

Nefndin felur byggingarstjóra að ganga frá öðrum málum sem fram komu á fundinum í samráði við hönnuði.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl.   15:30.

 

Kristín Hálfdánsdóttir, formaður.

Svanlaug Guðnadóttir.                                                         

Sigurður Pétursson.

Ágúst Gíslason.                                                                    

Jóhann Birkir Helgason.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?