Menningarmálanefnd - 150. fundur - 9. september 2008

Mættir eru:  Inga Steinunn Ólafsdóttir, formaður, Anna Sigríður Ólafsdóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir. Þorleifur Pálsson, bæjarritari, sat fund nefndarinnar og ritaði fundargerð.



Þetta var gert:



1. Erindi Tónlistarfélags Ísafjarðar, sent menningarmálanefnd frá bæjarráði Ísafjarðarbæjar. 2007-11-0081


Lagt fram bréf Tónlistarfélags Ísafjarðar ódagsett, er sent var menningarmálanefnd frá fundi bæjarráðs þann 8. september s.l.  Í bréfinu er óskað eftir fjárhagslegum stuðningi frá Ísafjarðarbæ, að upphæð kr. 1.000.000.-, vegna kostnaðar við að halda ,,Tónlistardaginn mikla? hér á Ísafirði, í tilefni af 60 ára afmæli Tónlistarfélagsins.


Anna Sigríður Ólafsdóttir vék af fundi undir þessum lið og í hennar stað kom Andrea Harðardóttir.


Menningarmálanefnd telur sér fært að veita styrk að upphæð kr. 400.000.-, í tilefni 60 ára afmælis Tónlistarfélagsins, af sínum ráðstöfunarliðum í fjárhagsáætlun, en vísar hugsanlega hærri styrkveitingum til bæjarráðs.



2. Bréf innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarps RUV. ? Útsvar spurningakeppni sveitarfélaga. 2008-09-0036


Lagt fram bréf frá Elísabetu Lindu Þórðardóttur f.h. innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarps RUV dagsett 18. júní s.l.  Í bréfinu kemur fram að verið sé að undirbúa dagskrá komandi vetrar og að þátturinn Útsvar, spurningakeppni milli sveitarfélaga, verði áfram á dagskrá. Verið er að kanna hvort Ísafjarðarbær sjái sér fært að taka aftur þátt í þessum þætti.  Ingi Þór Ágústsson, formaður menningarmálanefndar, svaraði þessu erindi með jákvæðum hætti nú í sumar, en tilnefna þarf fulltrúa Ísafjarðarbæjar í þáttinn.


Lagðar voru fram hugmyndir um þátttakendur f.h. Ísafjarðarbæjar og formanni falið að ræða við nokkra einstaklinga um að vera fulltrúar Ísafjarðarbæjar í Útsvari.



3. Bréf Kómedíuleikhússins. ? Beiðni um afnot af Tjöruhúsi í Neðstakaupstað. 2007-09-0059


Lagt fram bréf frá Kómedíuleikhúsinu á Ísafirði dagsett 10. ágúst s.l., þar sem  óskað er afnota af Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað til leiksýninga leikárið 2008-2009.


Menningarmálanefnd tekur vel í erindi Kómedíuleikhússins og mun boða Elvar Loga Hannesson á næsta fund nefndarinnar til viðræðna.



4. Útilistaverk í Ísafjarðarbæ.


Rætt um ástand útilistaverka í Ísafjarðarbæ og ákveður nefndin að fara í skoðunarferð á næstunni og óskað verður eftir að fulltrúi tæknideildar Ísafjarðarbæjar verði með í för.



5. Byggðasafn Vestfjarða. ? Íslensku safnaverðalaunin 2008. 2007-02-0137


Menningarmálanefnd óskar stjórn og starfsfólki Byggðasafns Vestfjarða til hamingju með að hafa hlotið Íslensku safnaverðlaunin fyrir árið 2008, fyrir metnaðarfullt starf að safnamálum.



6. Veturnætur. ? Framkvæmdir og skipulagning.


Rætt var um hátíðina ,,Veturnætur?, sem verið hefur á vegum menningarmála- nefndar undanfarin ár.  Menningarmálanefnd ákveður að ,,Veturnætur? verði haldnar dagana 23. til og með 26. október n.k.


Frekari undirbúningur og ákvarðanir verða á næsta fundi menningarmálanefndar, sem verður um komandi mánaðarmót.  


Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt.  Fundi slitið kl. 10:40.


Inga Steinunn Ólafsdóttir, formaður.


Ingunn Ósk Sturludóttir.


Anna Sigríður Ólafsdóttir.


Andrea Harðardóttir.


Þorleifur Pálsson, ritari.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?