Menningarmálanefnd - 117. fundur - 25. október 2005

Hansína Einarsdóttir, aðalmaður í menningarmálanefnd var fjarverandi, sem og varamaður hennar.

Þetta var gert.


1. Safnahúsið Eyrartúni. - Almenn þjónusta og opnunartímar. 2005-09-0050.


Til fundar við menningarmálanefnd er mættur Jóhann Hinriksson, forstöðumaður Safnahúss.


Tekið fyrir erindi frá Áslaugu S. Alfreðsdóttur, sem lagt var fram á síðasta fundi menningarmálanefndar, er varðar opnunartíma og almenna þjónustu í Safnahúsi Eyrartúni.


Menningarmálanefnd felur Jóhanni Hinrikssyni, forstöðumanni, að gera drög að stefnumótun vegna þjónustu í Safnahúsinu. Stefnt er að því að leggja drögin fyrir á næsta fundi menningarmálanefndar.



2. Samstarf Bæjar- og héraðsbókasafnsins Ísafirði og Bókasafns- og upplýsingafræðiskorar félagsvísindadeildar Háskóla Íslands.


Lagður fram samstarfssamningur á milli Bæjar- og héraðsbókasafnsins Ísafirði og Bókasafns- og upplýsingafræðiskorar félagsvísindadeildar Háskóla Íslands, dagsettur 10. október 2005. Markmið samstarfsins er að mynda tengsl á milli háskólanáms í bókasafns- og upplýsingafræðum og starfsemi almenningsbókasafns á vettvangi, báðum aðilum til hagsbóta.


Menningarmálanefnd staðfestir samstarfssamninginn.



3. Starfsemi Bæjar- og héraðsbókasafnsins almennt.


Jóhann Hinriksson, forstöðumaður, upplýsti menningarmálanefnd um endurskipulagningu á starfsemi bókasafnsins á Þingeyri.


Jafnframt gerði hann menningarmálanefnd grein fyrir væntanlegum styrkumsóknum í Safnasjóð.


Jóhann gerði og grein fyrir uppsetningu á vef ljósmyndasafnsins, sem styrktur var af Þjóðhátíðarsjóði.



4. Tendrun jólaljósa í Ísafjarðarbæ 2005.


Lögð fram tillaga að tímasettri dagskrá vegna tendrunar jólaljósa í Ísafjarðarbæ fyrir jólin 2005.


Tendrun á Ísafirði laugardaginn 3. desember n.k.


Tendrun á Suðureyri sunnudaginn 4. desember n.k.


Tendrun á Flateyri laugardaginn 10. desember n.k.


Tendrun á Þingeyri sunnudaginn 11. desember n.k.


Nánari upplýsingar um tímasetningu og dagskrána á hverjum stað liggi fyrir á næsta fundi menningarmálanefndar, sem verður fljótlega í nóvember n.k.



5. Bréf Karlakórsins Ernis. - Styrkbeiðni. 2005-10-0041.


Lagt fram bréf frá Karlakórnum Erni dagsett 15. október s.l., þar sem kórinn er að óska eftir styrk til starfsemi sinnar.


Erindið tekið fyrir við styrkveitingar á árinu 2006.


Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 16:10.


Þorleifur Pálsson, ritari.


Inga Ólafsdóttir, formaður.


Sigurborg Þorkelsdóttir.





Er hægt að bæta efnið á síðunni?