Landbúnaðarnefnd - 86. fundur - 3. september 2008

Fundarritari: Þórir Örn Guðmundsson.



Þetta var gert:



1. Göngur.


Landbúnaðarnefnd leggur til að smölun fari fram á þann veg að bændur og aðrir fjáreigendur smali eftir niðurröðun í sláturhúsi.


Allsherjarsmölun fari fram í sveitarfélaginu helgina 27 - 28. september n.k.


Það eru tilmæli landbúnaðarnefndar til bænda og annarra fjáreigenda, að þeir sleppi ekki fé úr allsherjarsmölun í haga fyrr en eftir 10. október n.k.



2. Gangna- og réttarstjórar 2008-09-0018.


Lagt er til að eftirtaldir verði gangna- og réttarstjórar í Ísafjarðarbæ.






























































































































































Í Skutulsfirði:
Hraunsrétt: Hjálmar Sigurðsson.
Kirkjubólsrétt: Steingrímur Jónsson og Kristján Jónsson.
Arnardalsrétt: Halldór Matthíasson.
Í Súgandafirði.
Keflavík að Seli: Svavar Birkisson.
Frá Seli að Sunddal: Karl Guðmundsson.
Sunddalur fyrir Sauðanes að Flateyri: Þorvaldur H. Þórðarson.
Í Önundarfirði:
Svæði 1. frá Flateyri að Breiðadalsá: Þorvaldur H. Þórðarson.
Svæði 2. frá Breiðadalsá að Vífilsmýrum: Magnús H. Guðmundsson.
Svæði 3. Vífilsmýrar að Þórustöðum: Ásvaldur Magnússon.
Svæði 4. Þórustaðir að Ingjaldsandi: Jón Jens Kristjánsson og Guðmundur St. Björgmundsson.
Í Dýrafirði, Mýrahreppi hinum forna:
Svæði 1. Ingjaldssandur Elísabet Pétursdóttir.
Svæði 2. frá Fjallaskaga um Ytri- Hlíðar, Nesdal og Barða Elísabet Pétursdóttir.
Svæði 3. frá Fjallaskaga að Alviðru Hermann Drengsson.
Svæði 4. Alviðrufjall og Núpsdalur Guðmundur Ásvaldsson og Bergsveinn Gíslason.
Svæði 5. frá Hvassahrygg að Glórugili. Jón Skúlason og Karl A Bjarnason
Svæði 6. frá Glórugili að Höfða Hermann Drengsson og Steinþór A. Ólafsson.
Svæði 7. Höfði að Botnsá. Sighvatur Jón Þórarinsson og Guðmundur Steinþórsson.
Í Dýrafirði, Þingeyrarhreppi hinum forna:
Svæði 1. frá Botnsá að Þingeyri. Ómar Dýri Sigurðsson.
Svæði 2. Brekkudalur að Kirkjubólsdal Guðrún Steinþórsdóttir.
Svæði 3. Kirkjubólsdalur að Hólum Sigrún Guðmundsdóttir.
Svæði 4. Hólar að Lokinhömrum Friðbert Jón Kristjánsson og Kristján Gunnarsson.
Í Arnarfirði, Auðkúluhreppi hinum forna:
Svæði 1. Lokinhamradalur Friðbert Jón Kristjánsson.
Svæði 2. Stapadalur og Álftamýri Guðmundur G. Guðmundsson.
Svæði 3. Bauluhús að Hjallkárseyri Hreinn Þórðarson.
Svæði 4. Hjallkárseyri að varnarg. á Mjólkárhl. Steinar R. Jónasson.
Svæði 5. Frá Mjólkárhlíð að Laugabóli Þorbjörn Pétursson.
Svæði 6. Laugaból og Hokinsdalur Árni Erlingsson.


Húsráðendur þar sem aðkomufé er rekið til réttar eða húsa skulu tilkynna eigendum þess um það svo fljótt sem auðið er.



3. Önnur mál.


Umræður urðu um þá erfiðleika sem verða við framkvæmd fjallskila samhliða því að bæir fara úr ábúð. Sérstaklega á þetta við í Önundarfirði norðanverðum þar sem allir bæir eru orðnir fjárlausir. Nefndin heitir á alla fjáreigendur sem eiga fjárvon þar að koma að smölun þess. Þá bendir nefndin á að nauðsynlegt er að koma upp aðhaldi til að smala fé í á Hvilftarströnd.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:15.


Sighvatur Jón Þórarinsson, formaður.


Ari Sigurjónsson.


Guðmundur Steinþórsson.


Þórir Örn Guðmundsson, ritari.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?