Landbúnaðarnefnd - 82. fundur - 28. ágúst 2007

Fundarritari: Þórir Örn Guðmundsson.


Þetta var gert:



1. Göngur.


Landbúnaðarnefnd leggur til að smölun fari fram á þann veg að bændur og aðrir fjáreigendur smali eftir niðurröðun í sláturhúsi.


Allsherjarsmölun fari fram í sveitarfélaginu helgina 22 - 23. september n.k.


Það eru tilmæli landbúnaðarnefndar til bænda og annarra fjáreigenda, að þeir sleppi ekki fé úr allsherjarsmölun í haga fyrr en eftir 10. október n.k.



2. Gangna- og réttarstjórar.


Lagt er til að eftirtaldir verði gangna- og réttarstjórar í Ísafjarðarbæ.



Í Skutulsfirði:


Hraunsrétt:Hjálmar Sigurðsson.


Kirkjubólsrétt:Steingrímur Jónsson og Kristján Jónsson.


Arnardalsrétt:Halldór Matthíasson.



Í Súgandafirði:


Keflavík að Seli:Svavar Birkisson.


Frá Seli að Sunddal:Karl Guðmundsson.


Sunddalur fyrir Sauðanes að Flateyri:Þorvaldur H. Þórðarson.



Í Önundarfirði:





Svæði 1. frá Flateyri að Breiðadalsá:Þorvaldur H. Þórðarson.


Svæði 2. frá Breiðadalsá að Vífilsmýrum:Magnús H. Guðmundsson.


Svæði 3. Vífilsmýrar að Þórustöðum:Ásvaldur Magnússon.


Svæði 4. Þórustaðir að Ingjaldsandi:Jón Jens Kristjánsson og Guðmundur St. Björgmundsson.



Í Dýrafirði, Mýrahreppi hinum forna:


Svæði 1. IngjaldssandurElísabet Pétursdóttir.


Svæði 2. frá Fjallaskaga um Ytri- Hlíðar, Nesdal


og BarðaElísabet Pétursdóttir.


Svæði 3. frá Fjallaskaga að AlviðruHelgi Árnason.


Svæði 4. Alviðrufjall og NúpsdalurGuðmundur Ásvaldsson og Bergsveinn Gíslason.


Svæði 5. frá Hvassahrygg að Glórugili.Jón Skúlason og Karl A Bjarnason


Svæði 6. frá Glórugili að HöfðaHermann Drengsson og Steinþór A. Ólafsson.


Svæði 7. Höfði að Botnsá.Sighvatur Jón Þórarinsson og Guðmundur Steinþórsson.



Í Dýrafirði, Þingeyrarhreppi hinum forna:


Svæði 1. frá Botnsá að Þingeyri.Ómar Dýri Sigurðsson.


Svæði 2. Brekkudalur að KirkjubólsdalGuðrún Steinþórsdóttir.


Svæði 3. Kirkjubólsdalur að HólumSigrún Guðmundsdóttir.


Svæði 4. Hólar að LokinhömrumFriðbert Jón Kristjánsson og Kristján Gunnarsson.


Í Arnarfirði, Auðkúluhreppi hinum forna:


Svæði 1. LokinhamradalurFriðbert Jón Kristjánsson.


Svæði 2. Stapadalur og ÁlftamýriGuðmundur G. Guðmundsson.


Svæði 3. Bauluhús að GljúfuráHreinn Þórðarson.


Svæði 4. Hjallkárseyri að varnarg. á Mjólkárhl.Steinar R Jónasson.


Svæði 5. Frá Mjólkárhlíð að LaugabóliÞorbjörn Pétursson.


Svæði 6. Laugaból og HokinsdalurÁrni Erlingsson.


Húsráðendur þar sem aðkomufé er rekið til réttar eða húsa skulu tilkynna eigendum þess um það svo fljótt sem auðið er.



3. Bréf Fjórðungssambands Vestfirðing. 2007-05-0070.


Lagt fram bréf Fjórðungssambands Vestfirðinga dagsett 18 maí s.l., ásamt tillögum og skýrslu vinnuhóps F.V. að aðgerðum og reglum vegna refa- og minkaveiða.


Landbúnaðarnefnd fagnar framkomnum tillögum. Leggur nefndin til við bæjarstjórn að Ísafjarðarbær ásamt öðrum sveitarfélögum á Vestfjörðum fari að þessum tillögum og hefji viðræður við Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar, um hvernig hægt sé að hrinda þeim í framkvæmd.



4. Bréf Tryggva Guðmundssonar, ?Umhverfisslys í Hornbjargi?. 2007-06-0051.


Lagt fram bréf frá Tryggva Guðmundssyni mótt. þann 14. júní s.l., þar sem hann lýsir þeim breytingum sem hafa orðið á fuglalífi á og við Hornbjarg, sem hann telur fyrst og fremst vera af völdum refs.


Nefndin tekur undir áhyggjur bréfritara og vísar til liðs nr. 3 hér að ofan.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:45.


Sighvatur Jón Þórarinsson, formaður.


Ari Sigurjónsson.


Guðmundur Steinþórsson.


Þórir Örn Guðmundsson, ritari.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?