Íþrótta-og tómstundanefnd - 134. fundur - 12. september 2012

Dagskrá:

 

1.

2011030095 - Stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar

 

Unnið að stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum, sem er langt á veg komin, afgreiðslu frestað til næsta fundar.

 

   

2.

2012090008 - Hagir og líðan ungs fólks í Ísafjarðarbæ 2012.

 

Lagðar fram til kynningar niðurstöður Rannsóknar og greiningar á högum og líðan ungs fólks í Ísafjarðarbæ.

 

   

3.

2011010055 - Ungt fólk - Æskulýðsrannsóknir

 

Lagðar fram til kynningar niðurstöður Rannsóknar og greiningar, Ungt fólk 2012.

 

   

4.

2011020114 - Uppsagnir - skipurit

 

Tekin fyrir tillaga bæjarstjóra um færslu skíðasvæðanna í Tungudal og á Seljalandsdal af umhverfis- og eignasviði yfir á skóla- og tómstundasvið.

Nefndin styður tillögu bæjarstjóra samhljóða.

 

   

5.

2011020008 - 16.,17. og 18. unglingalandsmót UMFÍ 2013-2015

 

Lagt fram bréf frá Héraðssambandi Vestfirðinga, dagsett 7. júní sl., er varðar Unglingalandsmót 2015. Í bréfinu kemur fram að HSV hefur áhuga á að sækja um að halda mótið í Ísafjarðarbæ og leitar eftir stuðningi Ísafjarðarbæjar til þess.

Nefndin tekur jákvætt í erindið.

 

   

6.

2012090006 - Fjárhagsáætlun 2013 og þriggja ára áætlun

 

Lögð fram gjaldskrá 2012 fyrir íþróttamannvirki og vinnuskóla.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að gjaldskrár verði hækkaðar til samræmis við hækkanir á öðrum gjaldskrám fyrir árið 2013.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:05

 

Kristján Óskar Ásvaldsson

Gauti Geirsson

Bryndís Ásta Birgisdóttir

Jóhanna Stefánsdóttir

Margrét Halldórsdóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?