Íþrótta-og tómstundanefnd - 130. fundur - 22. febrúar 2012

Dagskrá:

1.

2012010029 - Útboð á rekstri skíðasvæða í Ísafjarðarbæ.

 

Jóhann Birkir Helgason sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs mætti á fundinn og fór yfir útboðsgögn skíðasvæðisins með nefndarmönnum. Rætt almennt um skíðasvæðið.

 

Nefndin telur að skoða eigi að fara í útboð á skíðasvæðinu en óskar jafnframt eftir því ef farið verður í útboð að fá að hafa aðkomu að ákvörðuninni þegar tilboð hafa borist.

 

Gauti Geirsson lagði fram sér bókun. ?Útboð í þessari mynd er ekki skíðasvæðinu til framdráttar, of margir óvissuþættir eru til staðar hvað varðar framkvæmd útboðs og eftirlits svo að skynsamlegt sé að fara í það.

 

Nefndin leggur til að Tæknideild Ísafjarðarbæjar láti vinna kostnaðarútreikning á þeirri framkvæmd sem felst í því að gera veg, bílastæði og salernisaðstöðu við Miðfellslyftu á hjallanum vestan við Tungudal. Vegurinn myndi koma í framhaldi af vegi sem nú liggur að gönguskíðaskálanum og ná að þeim stað þar sem sneiðingurinn niður að lyftunni byrjar. Þessi framkvæmd myndi gera það kleyft að hafa aðgengi að Miðfellslyftunni þó lítill snjór sé niðri í dalnum og þar með fjölga opnunardögum svæðisins.

  

2.

2011030095 - Stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar

 

Lögð fram vinnugögn vegna stefnumótunar í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar.

Unnið við stefnumótun. 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:55.

 

Guðný Stefanía Stefánsdóttir.                           

Dagur Hákon Rafnsson.

 

Hermann Vernharður Jósefsson.                        

Hildur Sólveig Elvarsdóttir.

 

Gauti Geirsson.                                                  

Margrét Halldórsdóttir.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?