Íþrótta-og tómstundanefnd - 127. fundur - 14. desember 2011

1.

2010080057 - Stefnumótum í atvinnumálum Ísafjarðarbæjar.

 

Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, upplýsingafulltrúi Ísafjarðarbæjar og Shiran Þórisson, fulltrúi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, mættu á fundinn undir þessum lið dagskrár og fóru yfir punkta sem komið hafa fram í stefnumótunarvinnu atvinnumálanefndar, en atvinnulífið telur mikilvægt að íþrótta- og tómstundastarf sé fjölbreytt og öflugt í Ísafjarðarbæ.

Nefndin telur að mikið hafi verið lagt í íþrótta- og tómstundastarf á síðustu árum. Verið er að vinna að nýrri stefnu í íþrótta- og tómstundamálum og verður tekið tillit til athugasemda atvinnumálanefndar þar.

 

   

2.

2011120001 - Bókanir 47. sambandsþings UMFÍ 2011.

 

Lagt fram til kynningar bréf frá UMFÍ dagsett 29. nóvember s.l. þar sem fram koma samþykktar tillögur frá 47. sambandsþingi Ungmennafélags Íslands.

 

   

3.

2011110068 - Upplýsingarit um starfsemi FÍÆT.

 

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 18. nóvember s.l. og upplýsingarit frá Félagi íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi.

 

   

4.

2011010055 - Ungt fólk - Æskulýðsrannsóknir.

 

Lagt fram til kynningar rit mennta- og menningarmálaráðuneytisins Ungt fólk 2011. Þar er gerð grein fyrir niðurstöðum á högum og líðan nemenda í 5.-7. bekk grunnskóla.

 

   

5.

2011120031 - Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2011.

 

Lögð fram drög að dagsetningu á útnefningu íþróttamanns Ísafjarðarbæjar 2011 og drög að bréfi til íþróttafélaga sveitarfélagsins.

Nefndin leggur til að íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2011 verði útnefndur 22. janúar 2012 og felur starfsmanni að undirbúa þá athöfn. Þá leggur nefndin til við bæjarstjórn að íþróttamanni Ísafjarðarbæjar 2011 verð veitt peningaverðlaun          kr. 100.000.-.

 

   

6.

2011010006 - Samstarfssamningur Héraðssambands Vestfirðinga og Ísafjarðarbæjar.

 

Lagður fram núgildandi samstarfssamningur Héraðssambands Vestfirðinga og Ísafjarðarbæjar.

Nefndin felur starfsmanni að vinna breytingar á samningnum í samræmi við umræður á fundinum.

 

   

7.

2010010032 - Verkefnasamningur HSV og Ísafjarðarbæjar 2010.

 

Lagður fram núgildandi verkefnasamningur milli Héraðssambands Vestfirðinga og Ísafjarðarbæjar.

Nefndin felur starfsmanni að vinna breytingar á samningnum í samræmi við umræður á fundinum.

 

   

8.

2011030095 - Stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar.

 

Lögð fram vinnugögn af íbúaþingi um stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar. Unnið úr hluta af gögnunum en vinnu verður fram haldið á næsta fundi.

 

   

9.  Önnur mál.

a) Gauti Geirsson lýsti yfir áhyggjum af skíðasvæðinu. Ekki hefur verið ráðinn svæðisstjóri eins og áætlað var en mjög mikilvægt er að á svæðinu sé einhver sem áhuga hefur á svæðinu og er vakinn og sofinn yfir því. Viðkomandi þarf að vinna samkvæmt veðurspá og ná að fanga þann snjó sem mögulegt er. Mikið er af dýrum búnaði á svæðinu sem fara verður vel með. Mjög illa var gengið frá í sumar þegar enginn virtist bera ábyrgð á svæðinu.

Fulltrúar meirihlutans hvetja bæjarstjórn til að endurskoða þá ákvörðun að ráða ekki svæðisstjóra á skíðasvæðið.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50.

 

Guðný Stefanía Stefánsdóttir.

Dagur Hákon Rafnsson.

Hildur Sólveig Elvarsdóttir.

Gauti Geirsson.

Margrét Halldórsdóttir.

Daníel Jakobsson.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?