Íþrótta-og tómstundanefnd - 126. fundur - 9. nóvember 2011

Fundargerð ritaði:  Margrét Halldórsdóttir, Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs.

 

Jafnframt sat fundinn Kristján Þór Kristjánsson framkvæmdarstjóri HSV.

Hermann V Jósefsson mætti kl. 16:15. Dagur H Rafnsson mætti kl. 16:25.

Mættur var nýr nefndarmaður fyrir Framsóknarflokkinn, Gauti Geirsson. Þórdísi Jakobsdóttur eru þökkuð störf fyrir nefndina.

 

Dagskrá:

 

1.

2011110025 - Íslandsglíman 2012

 

Lagður fram tölvupóstur frá HSV fyrir hönd Harðar þar sem óskað er eftir því að íþrótta- og tómstundanefnd skipi fulltrúa í undirbúningsnefnd Íslandsglímunnar sem haldin verður á Ísafirði 14. apríl n.k.

Nefndin tekur vel í óskina og mun varaformaður íþrótta- og tómstundanefndar Guðný Stefanía Stefánsdóttir sitja í nefndinni og Gauti Geirsson vera hennar varamaður.

 

   

2.

2011100042 - Stefnumótun í íþróttamálum

 

Lagt fram til kynningar bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu dagsett 11. október s.l. auk bæklings með stefnumótun ráðuneytisins í íþróttamálum.

 

   

3.

2011030095 - Stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar

 

Unnið við undirbúning íbúaþings um stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00

 

Hildur Sólveig Elvarsdóttir                               

Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Dagur Hákon Rafnsson                                      

Hermann Vernharður Jósefsson

Gauti Geirsson                              

Margrét Halldórsdóttir

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?