Íþrótta-og tómstundanefnd - 102. fundur - 14. janúar 2009

Mætt voru: Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður, Þórdís Jakobsdóttir, Svava Rán Valgeirsdóttir,  Margrét Halldórsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar og Kristján Þór Kristjánsson, framkvæmdarstjóri HSV. Stella Hjaltadóttir og Ingólfur Þorleifsson mættu ekki vegna vanhæfis en   Hafdís Gunnarsdóttir og Guðný Harpa Henrysdóttir mættu í þeirra stað. Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður skóla- og fjölskylduskrifstofu boðaði forföll.


Fundargerð ritaði Margrét Halldórsdóttir.



Þetta var gert:



1. Val á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar 2008.  2009-01-0006.


Val á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar 2008. Níu tilnefningar bárust nefndinni um íþróttamann Ísafjarðarbæjar að þessu sinni. Nefndin tók einróma ákvörðun um valið og verður sú ákvörðun kynnt sunnudaginn 25. janúar n.k. í hófi sem haldið verður í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði kl. 16:00.  Ákveðið var að veita íþróttamanni Ísafjarðarbæjar 2008, peningaverðlaun að upphæð    kr. 100.000.-.



2. Önnur mál.


Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti möppu sem hann hefur útbúið fyrir nefndina. Nefndin þakkar íþrótta- og tómstundafulltrúa fyrir frábært framtak.


 


Lögð fram tillaga að gjaldskrá í íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2009. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.


Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt.  Fundi slitið klukkan kl. 18:05.


Guðný Stefanía Stefánsdóttir.


Þórdís Jakobsdóttir.


Hafdís Gunnarsdóttir.


Guðný Harpa Henrysdóttir.


Svava Rán Valgeirsdóttir.


Margrét Halldórsdóttir.


Kristján Þór Kristjánsson.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?