Íþrótta - 173. fundur - 9. nóvember 2016

Dagskrá:

1.  

Verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar - 2014030027

 

Lagður fram verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

2.  

Beiðni um vinnuframlag áhaldshúss fyrir blakdeild Vestra - 2016110021

 

Lagður fram tölvupóstur frá HSV, fyrir hönd blakdeildar Vestra, þar sem óskað er eftir aðkomu Ísafjarðarbæjar að framkvæmdum umhverfis strandblakvöll.

 

Nefndin vísar málinu til skoðunar hjá umhverfis- og eignasviði með það fyrir sjónum að skoða hvort möguleiki er á að koma drenlögn upp fyrir veturinn. Nefndin leggur til við félagið að það óski eftir uppbyggingasamningi við sveitarfélagið.

 

   

3.  

Ósk um frí sund- og skíðakort fyrir þjálfara - 2016110022

 

Lagður fram tölvupóstur frá HSV, fyrir hönd blakdeildar Vestra, þar sem óskað er eftir sund- og skíðakorti fyrir þjálfara.

 

Nefndin hafnar beiðninni þar sem hún getur verið fordæmisgefandi.

 

   

4.  

Endurskoðun íþrótta- og tómstundastefnu haust 2016 - 2016110023

 

Lögð fram íþrótta- og tómstundastefna Ísafjarðarbæjar.

 

Nefndin leggur til að farið verði í endurskoðun íþrótta- og tómstundastefnu og felur starfsmanni nefndarinnar að koma með áætlun á næsta fund í samræmi við umræður á fundinum.

 

 

Gestir

 

Esther Ósk Arnórsdóttir - 08:40

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:35

 

Jón Ottó Gunnarsson

 

Sif Huld Albertsdóttir

Guðrún Margrét Karlsdóttir

 

Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir

Margrét Halldórsdóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?