Íþrótta - 156. fundur - 18. febrúar 2015

Dagskrá:

1.  

Verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar - 2014030027

 

Lagður fram til kynningar verkefnalisti nefndarinnar.

 

   

2.  

Uppbyggingarsamningar við íþróttafélög - 2015020007

 

Lagðar fram óskir íþróttafélaga til Ísafjarðarbæjar um uppbyggingarsamninga vegna uppbyggingar sem nýtist íþróttahreyfingunni. Málið var áður á dagskrá síðasta fundar 4. febrúar s.l.
Nefndin leggur til að farið verði í viðræður við SFÍ, KFÍ/Hörð, BÍ og GÍ og mið tekið af drögum að uppbyggingaráætlun sem félögin hafa sent inn. Uppbyggingaráætlun íþróttamannvirkja, sem samþykkt var á síðasta ári og unnin í fullri sátt við íþróttahreyfinguna verður einnig höfð til hliðsjónar. Nefndin felur formanni að funda með félögum í samstarfi við HSV um næstu skref.

 

3. Önnur mál.

Nefndin skorar á bæjarstjórn að flýta framtíðarskipulagi á Torfnessvæðinu.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:55

 

Benedikt Bjarnason

 

Sif Huld Albertsdóttir

Þórir Karlsson

 

Guðjón Már Þorsteinsson

Guðrún Margrét Karlsdóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?