Íþrótta - 147. fundur - 19. febrúar 2014

Dagskrá:

1.

2014020062 - Verkaskipting á kappleikjum í íþróttahúsinu á Torfnesi.

 

Lagt fram bréf frá KFÍ þar sem óskað er eftir aukinni þjónustu á kappleikjum í tveimur efstu deildum Íslandsmóts meistaraflokka, þar sem almenningi er seldur aðgangur.

 

Nefndin leggur áherslu á að reglur um kappleiki eru skýrar, hún er hinsvegar ekki tilbúin til að samþykkja aukningu stöðugilda. Nefndin felur starfsmanni að skoða hvort mögulegt er leysa málið án kostnaðarauka.

 

   

2.

2011030095 - Stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar

 

Lagðar fram athugasemdir frá almenningi varðandi uppbyggingaráætlun íþróttamannvirkja Ísafjarðarbæjar.

 

Unnið að uppbyggingaráætlun íþróttamannvirkja, farið yfir þær umsagnir sem komu frá almenningi. Stefnt að því að klára áætlunina á næsta fundi.

 

   

3.

2014020071 - Ósk frá Stormi um samstarfssamning

 

Lagt fram bréf Hestamannafélaginu Stormi, dagsett 18. febrúar 2014, þar sem óskað er eftir samstarfssamningi við Ísafjarðarbæ vegna reiðahallarinnar í Dýrafirði.

 

Nefndin leggur til að hafnar verði viðræður við félagið með það að leiðarljósi að gerður verði viðaukasamningur við verkefnasamning Ísafjarðarbæjar og HSV.

 

   

4. Önnur mál

a) Útipottar á Flateyri. Margrét gerði grein fyrir pottum sem setja á upp á útisvæði íþróttamiðstöðvarinnar á Flateyri.

 

b) Skóla- og tómstundasvið, fimm ára áætlun. Nefndin áformar að halda vinnufund 12. mars n.k. vegna fimm ára áætlunar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00

 

Guðný Stefanía Stefánsdóttir.

Kristján Óskar Ásvaldsson.

Bragi Rúnar Axelsson.

Guðríður Sigurðardóttir.

Margrét Halldórsdóttir.

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?