Íþrótta - 142. fundur - 25. september 2013

1.     2013060084 - Rekstur á lyftingaaðstöðu í Vallarhúsi
Nefndin leggur til að málinu verði frestað til skamms tíma þar til framtíðarákvörðun um Torfnessvæðið verði ljós.
        
2.     2013060033 - Fjárhagsáætlun 2014
Forstöðumaður íþróttamannvirkja Ísafjarðarbæjar kynnir fyrir nefndinni drög að nýrri gjaldskrá sem og fjárhagsáætlun fyrir árið 2014.
Nefndin leggur til við bæjarráð að árskort á skíði verði tímabilsbundin en ekki ársbundin og að árskort á skíði hækki úr 13.100 kr í 14.000 kr.
        
3.     2011030095 - Stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar
Uppbyggingaráætlun íþróttamannvirkja Ísafjarðarbæjar rædd. Farið er yfir vinnuskjal vegna þarfagreiningar íþróttarmannvirkja Ísafjarðarbæjar.
Lagt fram til kynningar og umræðna.
        
4.     2013030024 - Vinnuskólinn 2013
Íþróttarfulltrúi Ísafjarðarbæjar kynnir fyrir nefndinni skýrslu vinnuskólans fyrir sumarið 2013.
Lagt fram til kynningar.
        
5. Önnur mál
Framkvæmdarstjóri HSV óskar eftir því við íþrótta- og tómstundanefnd að hún styðji við HSV vegna umsóknar sambandsins um að halda vetrarlandsmót UMFÍ árið 2016. Nefndin fagnar hugmyndum HSV og hvetur HSV til að sækja um vetrarlandsmót UMFÍ árið 2016.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00

Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Gauti Geirsson
Kristján Óskar Ásvaldsson

Nanný Arna Guðmundsdóttir
Patrekur Súni Reehaug        

Er hægt að bæta efnið á síðunni?