Hátíðarnefnd - 6. fundur - 16. febrúar 2016

 Dagskrá:

1.  

Hátíðarhöld á Byggðasafni Vestfjarða - 2015090060

 

Lagður er fram tölvupóstur Jóns Sigurpálssonar, forstöðumanns Byggðasafns Vestfjarða, frá 8. febrúar sl., varðandi hátíðarhöld í Byggðasafninu í sumar.

 

Hátíðarnefnd telur saltfiskveislu á föstudeginum 16. júlí vera góða framlengingu á þeim hátíðarhöldum sem fram fara í Neðsta kaupstað og felur starfsmanni nefndarinnar að ræða við bréfritara.

 

   

2.  

Klukkuport í Neðsta kaupstað - 2015090060

 

Lagður er fram tölvupóstur Jóns Sigurpálssonar, forstöðumanns Byggðasafns Vestfjarða, frá 2. febrúar sl., varðandi klukkuportið í Neðsta kaupstað.

 

Hátíðarnefnd tekur vel í verkefnið, felur starfsmönnum nefndarinnar að vinna að fjármögnun verksins og koma með tillögu fyrir næsta fund hátíðarnefndar.

 

   

3.  

Almenn skipulagning hátíðarhalda í tengslum við afmæli Ísafjarðarbæjar árið 2016 - 2015090060

 

Hátíðarhöld 14.-17. júlí nk. í tilefni afmælis Ísafjarðarbæjar

 

Unnið var að frekari vinnu dagskrár og undirbúnings hátíðarhaldanna í júlí.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:19

 

 

Nanný Arna Guðmundsdóttir

 

Jónas Þór Birgisson

Kristján Andri Guðjónsson

 

Inga Steinunn Ólafsdóttir

Hálfdán Bjarki Hálfdánsson

 

Þórdís Sif Sigurðardóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?