Hafnarstjórn - 185. fundur - 21. júní 2016

Dagskrá:

1.  

Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2015 - 2016030064

 

Lagður fram ársreikningur hafnarsjóðs Ísafjarðarbæjar 2015.

 

Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri fór yfir ársreikning hafnarsjóðs fyrir árið 2015. Hafnarstjórn þakkar góðan rekstur.

 

   

2.  

Ársreikningur Hafnasambands Íslands - 2013060031

 

Lagður fram ársreikningur Hafnasambands Íslands 2015.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

3.  

Boð á Hafnasambandsþing - 2013060031

 

Lagt fram boð á Hafnasambandsþing sem haldið verður á Ísafirði dagana 13. og 14. október.

 

Hafnarstjórn samþykkir að aðalmenn nefndarinnar verði fulltrúar Ísafjarðarbæjar á þinginu og varamenn til vara.

 

   

4.  

Fundargerðir stjórnarfunda Hafnasambands Íslands - 2013060031

 

Lagðar fram fundargerðir 383., 384. og 385. stjórnarfunda Hafnasambands Íslands.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

5.  

Sjávarútvegssýning 2016 - 2016060058

 

Lagt fram erindi frá Athygli ehf. varðandi sjávarútvegssýningu sem haldin verður 28. til 30. september.

 

Hafnarstjórn þakkar gott boð en sér ekki ástæðu til að taka þátt í sýningunni.

 

   

6.  

Viðbragðsáætlun vegna bráðamengunar innan hafnarsvæða - 2016010016

 

Lögð fram drög Ralfs Trylla umhverfisfulltrúa að endanlegri viðbragðsáætlun vegna bráðamengunar. Áður voru lögð fram drög að áætlun á 183. fundi hafnarstjórnar þann 1. mars sl.

 

Hafnarstjórn þakkar góða vinnu og samþykkir drögin með fyrirvara um smávægilegar breytingar í samræmi við umræður á fundinum.

 

   

 

Hafnarstjórn beinir þeirri áskorun til bæjaryfirvalda að tengivegur milli bátahafnar og Hafnarstrætis á Flateyri verði settur undir bundið slitlag.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:55

 

 

Jóna Benediktsdóttir

 

Sigurður Jóhann Hafberg

Marzellíus Sveinbjörnsson

 

Valur Sæþór Valgeirsson

Ragnar Ágúst Kristinsson

 

Hálfdán Bjarki Hálfdánsson

Guðmundur M Kristjánsson

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?