Fræðslunefnd - 377. fundur - 23. febrúar 2017

Dagskrá:

1.  

Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

 

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.

 

Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og stöðu mála.

 

   

2.  

Bréf frá stjórn Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum til sveitarstjórnarmanna. - 2017020098

 

Lagður fram tölvupóstur frá Dagrúnu Hjartardóttur, starfandi formanni félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, dagsettur 9. febrúar sl., þar sem KÍ gerir athugasemdir við yfirlýsingu, sem samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga sendi frá sér 22. desember sl.um stöðuna í kjaraviðræðum þeirra við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.

 

Fræðslunefnd þakkar Dagrúnu fyrir bréfið og lýsir jafnframt ánægju sinni yfir að samningar hafi náðst.

 

   

3.  

Íslandsmót iðn- og verkgreina 2017 - hvatning til sveitarfélaga og skóla - 2017020044

 

Lagður fram tölvupóstur Svandísar Ingimundardóttur, skólamálafulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 7. febrúar sl. þar sem kynnt er Íslandsmót iðn- og verkgreina 2017. Á mótinu gefst grunnskólanemendum tækifæri til að kynnast fjölbreyttu framboði iðn- og verknáms á framhaldsskólastigi, sjá nemendur á viðkomandi námssviðum spreyta sig á ólíkum verkefnum auk þess að fá sjálfir að reyna sig við ýmsar verklegar æfingar.
Verkiðn sér um skipulagningu og framkvæmd viðburðarins í samstarfi við fagfélög iðn- og verkgreina og framhaldsskóla og býður sveitarfélögum og skólum styrki til þess að koma nemendum á staðinn með rútum.
Bæjarráð vísaði erindinu til fræðslunefndar á 963. fundi sínum 13. febrúar sl.

 

Fræðslunefnd þakkar fyrir kynninguna.

 

   

4.  

Endurskoðun á skólastefnu Ísafjarðarbæjar - 2016100048

 

Lögð fram drög að skipulagi við endurskoðun skólastefnu Ísafjarðarbæjar.

 

Skipaður verður stýrihópur og stefnt að verklokum fyrir árslok 2017.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 8:47

 

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir

 

Bragi Rúnar Axelsson

Jónas Þór Birgisson

 

Martha Kristín Pálmadóttir

Gunnhildur Björk Elíasdóttir

 

Margrét Halldórsdóttir

Guðrún Birgisdóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?