Fræðslunefnd - 375. fundur - 15. desember 2016

Fundargerð ritaði:  Guðrún Birgisdóttir, Skóla- og sérkennslufulltrúi.

 

Fundinn sátu undir grunnskólamálum, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjórnenda og Bryndís Birgisdóttir sem fulltrúi kennara. Undir málefnum leikskóla sitja Helga Björk Jóhannsdóttir, fulltrúi skólastjórnenda og Bryndís Gunnarsdóttir sem fulltrúi starfsfólks.

 

Dagskrá:

1.  

Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

 

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.

 

Gert var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og stöðu þeirra.

 

   

2.  

Mentor - 2016120022

 

Lögð fram tilkynning um skil starfshóps um málefni Mentor og ný persónuverndarlöggjöf.

 

Fræðslunefnd óskar eftir að þessum fyrirmælum verði fylgt eftir.

 

   

3.  

Skólapúlsinn - 2010120017

 

Margrét Halldórsdóttir sviðstjóri skóla- og tómstundasviðs með niðurstöður skólapúlsins.

 

Sviðstjóri kynnti vinnuplagg þar sem farið var yfir stöðu mála skólapúlsins.

 

   

4.  

Stillum saman strengi - 2014110015

 

Lagt fram minnisblað frá Margréti Halldórsdóttir sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs um niðurstöður úr skimunum í leik- og grunnskólum ísafjarðarbæjar haustið 2016.

 

Fræðslunefnd þakkar fyrir gagnlegar upplýsingar.

 

   

5.  

Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047

 

Lögð fram fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2017.

 

Lagt fram til kynnigar.

 

   

  

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15

 

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir

 

Bragi Rúnar Axelsson

Jónas Þór Birgisson

 

Martha Kristín Pálmadóttir

Gunnhildur Björk Elíasdóttir

 

Margrét Halldórsdóttir

Guðrún Birgisdóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?