Fræðslunefnd - 368. fundur - 23. maí 2016

 Dagskrá:

1.  

Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

 

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.

 

Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og eru í vinnslu.

 

   

2.  

Fréttabréf grunnskóla 2015-2016 - 2015090015

 

Lagt fram fréttabréf frá Grunnskólanum á Ísafirði

 

Fræðslunefnd þakkar fróðlegt og skemmtilegt fréttabréf.

 

   

3.  

Ábending til skólanefnda. - 2016050052

 

Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, efni þess er ábending til skólanefnda um kostnað vegna námsgagna.

 

Nefndin vekur athygli á að Ísafjarðarbær útvegar nú þegar ritföng fyrir nemendur.

 

   

4.  

Niðurstöður Rannsóknar og Greiningar 2016 - 2016050044

 

Lýðheilsa ungs fólks í Ísafjarðarbæ. Lagðar fram niðurstöður rannsóknar meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk árið 2016.

 

Lagt fram til kynningar. Áframhaldandi vinna er í höndum starfsmanna.

 

   

5.  

Verklagsreglur til að geta útskrifast úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið. - 2016050056

 

Lögð fram drög að verklagsreglum vegna útskriftar nemenda sem óska eftir að útskrifast fyrr úr grunnskóla.

 

Lagt fram til kynningar. Unnið verður áfram með málið.

 

   

6.  

Sjálfsmatsskýrsla 2015-2016 - 2016050057

 

Lögð fram sjálfsmatsskýrsla Grunnskóla Önundarfjarðar fyrir árið 2015-2016.

 

Fræðslunefnd þakkar fyrir skýrslu Grunnskóla Önundarfjarðar.

 

   

7.  

Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047

 

Lögð fram gjaldskrá Ísafjarðarbæjar.

 

Fræðslunefnd leggur til að hækkun verði flöt í samræmi við aðrar hækkanir gjaldskrár.

 

   

8.  

Skóladagatal 2016-2017 - 2016030044

 

Lögð fram skóladagatöl frá leikskólunum Laufási á Þingeyri og Tjarnarbæ á Suðureyri, fyrir skólaárið 2016-2017.

 

Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við skóladagatölin.

 

   

9.  

Framtíðarsýn í dagvistarmálum Ísafjarðarbæjar - 2013010070

 

Staða dagvistarmála og framtíð hennar rædd.

 

Frestað til næsta fundar.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:27

 

 

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir

 

Martha Kristín Pálmadóttir

Auður Helga Ólafsdóttir

 

Sigurður Jón Hreinsson

Sif Huld Albertsdóttir

 

Margrét Halldórsdóttir

Guðrún Birgisdóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?