Fræðslunefnd - 356. fundur - 19. maí 2015

Dagskrá:

1.  

Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

 

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.

 

Lagt fram til kynningar

 

   

2.  

Skólastjóri Grunnskólans á Suðureyri - uppsögn og ráðning 2015 - 2015030085

 

Lagt fram minnisblað frá Gísla Halldóri Halldórssyni, bæjarstjóra og Herdísi Rós Kjartansdóttur, mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar, dagsett 13.maí 2015, þar sem farið er yfir umsækjendur um stöðu skólastjóra við Grunnskólann á Suðureyri. Þrír sóttu um stöðuna.

 

Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við tillögu bæjarstjóra og mannauðsstjóra að ráðningu.

 

 

Gestir

 

Herdís Rós Kjartansdóttir - 08:25

 

   

3.  

Ráðning skólastjóra Þingeyri 2015 - 2015040019

 

Lagt fram minnisblað frá Gísla Halldóri Halldórssyni, bæjarstjóra og Herdísi Rós Kjartansdóttur, mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar, dagsett 13.maí 2015, þar sem farið er yfir umsækjendur um stöðu skólastjóra við Grunnskólann á Þingeyri. Þrír sóttu um stöðuna, einn dró umsókn sína til baka.

 

Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við tillögu bæjarstjóra og mannauðsstjóra að ráðningu.

 

   

3.  

Skóladagatöl 2015-2016 - 2015040021

 

Lagt fram skóladagatal Grunnskóla Önundarfjarðar.

 

Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við skóladagatal Grunnskóla Önundarfjarðar.

 

   

4.  

Stillum saman strengi - 2014110015

 

Lögð fram aðgerðaráætlun Grunnskólans á Suðureyri.

 

Fræðslunefnd þakkar fyrir ágæta áætlun.

 

   

5.  

Ósk um að ráða inn starfsmann í 87,5% - 2015050032

 

Lagt fram bréf, dagsett 6. maí 2015, frá Helgu Björk Jóhannsdóttur, leikskólastjóra á Sólborg, þar sem hún óskar eftir að fá að ráða starfsmann í 87,5% stöðugildi vegna stuðnings.

 

Fræðslunefnd frestar málinu og felur starfsmönnum skóla- og tómstundasviðs, ásamt leikskólastjóra, að vinna að málinu.

 

   

6.  

Skóladagatöl 2015-2016 - 2015050031

 

Lögð fram skóladagatöl leikskólanna Eyrarskjóls, Sólborgar, Laufáss, Tjarnarbæjar og Grænagarðs fyrir skólaárið 2015-2016.

 

Fræðslunefnd samþykkir skóladagatölin með fyrirvara um sumarlokanir 2016.

 

   

7.  

Leikskólastjóri Laufás afleysing 1 ár 2015 - 2015040020

 

Lagt fram minnisblað frá Gísla Halldóri Halldórssyni, bæjarstjóra og Herdísi Rós Kjartansdóttur, mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar, dagsett 18.maí 2015, þar sem farið er yfir umsækjendur um stöðu leikskólastjóra við leikskólann Laufás. Tveir sóttu um stöðuna.

 

Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við tillögu bæjarstjóra og mannauðsstjóra að ráðningu.

 

   

8.  

Skýrslur tónlistarskóla 2015-2016 - 2015050033

 

Lagðar fram áætlanir frá Tónlistarskóla Ísafjarðar og Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar fyrir skólaárið 2015-2016.

 

Fræðslunefnd þakkar fyrir áætlanirnar.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45

 

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir

 

Bragi Rúnar Axelsson

Jónas Þór Birgisson

 

Martha Kristín Pálmadóttir

Elísabet Samúelsdóttir

 

Auður Helga Ólafsdóttir

Sigurlína Jónasdóttir

 

Margrét Halldórsdóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?