Fræðslunefnd - 342. fundur - 5. mars 2014

Dagskrá:

1.

2013090015 - Skýrslur og áætlanir skóla, skólaárið 2013-2014

 

Lögð fram sjálfsmatsskýrsla frá Grunnskólanum á Suðureyri fyrir skólaárið 2013-2014, í skýrslunni er lögð áhersla á stjórnun og notkun búnaðar og námsumhverfis.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

2.

2013090015 - Skýrslur og áætlanir skóla, skólaárið 2013-2014

 

Lögð fram bráðabirgðaskýrsla frá Grunnskólanum á Ísafirði um nám og námsárangur. Skýrslan er byggð á þriggja ára niðurstöðum samræmdra prófa í íslensku og stærðfræði. Skoðað er hlutfall framfara, raðeinkunnir og frávik frá landsmeðaltali.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

3.

2013020004 - Fréttabréf grunnskóla 2013

 

Lagr fram fréttabréf febrúarmánaðar frá Grunnskólanum á Ísafirði.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.

2014030005 - Niðurstöður PISA

 

Lögð fram skýrsla með helstu niðurstöðum PISA 2012, þar sem sjónum er beint að læsi nemenda á stærðfræði og náttúrufræði og lesskilning. Einnig eru lagðar fram niðurstöður nemenda Ísafjarðarbæjar í PISA 2012 bornar saman við Vestfirði og Ísland í heild.

 

Fræðslunefnd felur starfsmönnum Skóla- og tómstundasviðs að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja síðan málið aftur fyrir fræðslunefnd.

 

   

5.

2014020113 - Þriggja ára áætlun og fimm ára framkvæmdaáætlun

 

Rædd 5 ára áætlun í skólum sveitarfélagsins hvað varðar viðhald, fjárfestingar og þróun stöðugilda.

 

Fræðslunefnd felur starfsmönnum skóla - og tómstundasviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja síðan málið aftur fyrir fræðslunefnd.

 

   

Önnur mál:

6. 2014-01-0034 Lögð fram ályktun frá kennurum Grunnskólans á Ísafirði þar sem þau telja tölvumál skólans óviðundandi og ekki ítakt við það sem nútíma kennsluhættir krefjast.

Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs upplýsti að hún og bæjarstjóri hafi farið á starfsmannafund og þessi mál verið rædd þar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:05

 

 

Gísli Halldór Halldórsson

 

Helga Dóra Kristjánsdóttir

Auður Helga Ólafsdóttir

 

Benedikt Bjarnason

Hólmfríður Vala Svavarsdóttir

 

Sigurlína Jónasdóttir

Margrét Halldórsdóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?