Fræðslunefnd - 341. fundur - 26. febrúar 2014

Dagskrá:

1.

2013120028 - Úthlutunarlíkan og samstarfssamningur

 

Lögð fram umsögn frá Ingunni Ósk Sturludóttur, skólastjóra Tónlistarskóla Ísafjarðar, vegna samstarfssamnings Tónlistarskóla Ísafjarðar og Ísafjarðarbæjar. Málið var áður tekið fyrir á 340. fundi fræðslunefndar.

 

Sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs falið að senda drögin til nefndarmanna að loknum umræðum á fundinum.

 

   

2.

2014020101 - Ósk um aukningu á afleysingu á Sólborg

 

Lagt fram bréf, dagsett 24. febrúar 2014, frá Helgu Björk Jóhannsdóttur, leikskólastjóra leikskólans Sólborgar, þar sem óskað er eftir aukningu á stöðugildum um 0,875 við Sólborg.

 

Fræðslunefnd felur starfsmönnum skóla- og tómstundaviðs Ísafjarðarbæjar að koma með nánari upplýsingar og samanburð við aðra skóla á næsta fund nefndarinnar.

 

   

3.

2014020109 - Greinargerð-Eyrarsól

 

Lögð fram greinargerð frá Sigurlínu Jónasdóttur, skóla-og sérkennslufulltrúa, um Eyrarsól, þar sem farið er yfir hvernig starfið hefur gengið fyrstu mánuðina.

 

Fræðslunefnd telur nauðsynlegt að reka Eyrarsól skólaárið 2014-2015, en ljóst er að miðað við núverandi aðstæður getur það aldrei orðið nema tímabundin lausn.

 

   

4.

2012120019 - Úttekt á starfi leikskóla innan sveitarfélaga

 

Lögð fram skýrsla frá Námsmatsstofnun um niðurstöður á ytra mati sem framkvæmt var á leikskólanum Sólborg.

 

Skýrslan lögð fram til kynningar.

 

   

Önnur mál.

5. Skóla- og tómstundasvið, fimm ára áætlun. Nefndin áformar að halda vinnufund 5. mars n.k. vegna fimm ára áætlunar.

 

6. Starfsmönnum skóla- og tómstundasviðs falið að endurskoða fundartíma nefndarinnar.

 

7. Benedikt Bjarnason óskaði eftir að fá upplýsingar um samstarf á milli skóla sveitarfélagsins.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16.30

 

 

Gísli Halldór Halldórsson

 

Helga Dóra Kristjánsdóttir

Auður Helga Ólafsdóttir

 

Benedikt Bjarnason

Hólmfríður Vala Svavarsdóttir

 

Sigurlína Jónasdóttir

Margrét Halldórsdóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?