Fræðslunefnd - 336. fundur - 24. september 2013

1.     2013090009 - Sumarlokun Eyrarskjóls og Sólborgar 2014
Lagðar fyrir athugasemdir frá foreldraráðum Eyrarskjóls og Sólborgar vegna sumarlokunar 2014. Málið var áður á 335. fundi fræðslunefndar.
Að höfðu samráði við foreldraráðin á Eyrarskjóli og Sólborg leggur fræðslunefnd til að Eyrarskjól og Sólborg loki samtímis í 4 vikur sumarið 2014.
        
2.     2013090040 - Ósk um að ráða starfsmann á Eyrarskjól
Lagt fram bréf frá Guðríði Guðmundsdóttur, leikskólastjóra Eyrarskjóls, dagsett 20. september 2013, þar sem óskað er eftir að fá að ráða inn starfsmann í eitt stöðugildi vegna barns sem þarf aðstoð í námi.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að ráðinn verði starfsmaður í 0,75 stöðugildi og ákvörðunin verði endurskoðuð um áramót.
        
3.     2013090041 - Tillaga til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi.
Lögð fram tillaga til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi og óskað eftir umsögn frá fræðslunefnd um áætlun um hvernig sveitarfélögin standi að því að bjóða leikskólaúrræði strax og fæðingarorlofi lýkur. Miðað verði við að þegar fæðingarorlofið hefur verið lengt í 12 mánuði árið 2016 verði sveitarfélög um landið reiðubúin að veita
þjónustuna.
Fræðslunefnd telur skynsamlegra að lengja fæðingarorlofið í 18 mánuði.
        
4.     2013060033 - Fjárhagsáætlun 2014
Nokkur mál er viðkoma fjárhagsáætlun 2014 rædd, t.d. gjaldskrá skóla - og tómstundasviðs, rekstraráætlanir leik - og grunnskólanna fyrir árið 2014 og hvað þarf í viðhald og innkaup í leik- og grunnskólana.
Fræðslunefnd leggur til að gjaldskrá skóla - og tómstundasviðs verði samþykkt eins og hún er lögð upp og leggur einnig áherslu á að skólarnir geti keypt þann búnað sem rætt hefur verið um og er á rekstraráætlun þeirra.
        
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.

Helga Dóra Kristjánsdóttir

Auður Helga Ólafsdóttir
Gísli Halldór Halldórsson

Benedikt Bjarnason
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir

Sigurlína Jónasdóttir
Margrét Halldórsdóttir        

Er hægt að bæta efnið á síðunni?