Fræðslunefnd - 330. fundur - 13. mars 2013

Mættir áheyrnarfulltrúar: 

Guðríður Guðmundsdóttir fyrir leikskólastjóra, Sif Huld Albertsdóttir fyrir foreldra, Edda Graichen og Elfar Reynisson, fulltrúar kennara og Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjóra.

Gunnhildur Björk Elíasdóttir, fulltrúi foreldra mætti ekki og engin í hennar stað.

 

Dagskrá:

1.

2012120019 - Úttekt á starfi leikskóla innan sveitarfélaga.

 

Lagt fram bréf, dagsett 7. febrúar 2013, frá Þóru Björk Jónsdóttur, deildarstjóra matsdeildar Námsmatsstofnunar, þar sem tilkynnt er að samþykkt hafi verið að gera ytra mat á starfsemi leikskólans Sólborgar haustið 2013.

 

Fræðslunefnd fagnar því að umsókn um ytra mat á starfsemi Sólborgar hafi verið samþykkt.

 

   

2.

2013020069 - Ósk um að ráða starfsmann á Sólborg.

 

Lagt fram bréf dagsett 25. febrúar 2013, frá Helgu Björk Jóhannsdóttur, leikskólastjóra á Sólborg, þar sem hún óskar eftir að fá að ráða starfsmann í 80% starf fram að sumarleyfi leikskólans og þá verði staðan endurmetin.

 

Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að beiðnin verði samþykkt.

 

   

3.

2013030002 - Ósk um niðurgreiðslu vegna barns, sem er á biðlista eftir leikskólaplássi á Ísafirði.

 

Lagt fram bréf dagsett 1. mars 2013, frá Guðmundi Hauki Sigurlaugssyni og Kristjönu Valgeirsdóttur, þar sem óskað er eftir að tekið sé tillit til þess auka kostnaðar, sem er hjá þeim vegna þess að barnið þeirra er í leikskólanum á Suðureyri, en þau búa á Ísafirði. Barnið hefur ekki fengið úthlutað leikskólaplássi á Ísafirði, en það varð 18  mánaða um síðustu áramót. Þau óska eftir að fá niðurgreitt til jafns við foreldra barna sem orðin eru 18  mánaða og eru hjá dagforeldrum.

 

Fræðslunefnd felur starfsmönnum Skóla- og tómstundasviðs að vinna frekar að málinu í samræmi við umræðurnar á fundinum.

 

   

4.

2012030049 - Fréttabréf.

 

Lagt fram febrúarfréttabréf Grunnskólans á Ísafirði.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

5.

2011120054 - Umsóknir um úttektir á grunnskólum.

 

Lögð fram umbótaáætlun frá Grunnskólanum á Ísafirði.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

6.

2013020050 - Skýrslur grunnskóla 2013.

 

Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, fór yfir umræður af fundi, sem fræðslunefnd átti með skólastjórnendum og nokkrum kennurum Grunnskólans á Ísafirði, fimmtudaginn 7. mars 2013. Á fundinum var farið yfir þær spurningar sem snúa að fræðsluyfirvöldum.

 

Starfsmönnum skóla- og tómstundasviðs falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræðurnar á fundinum.

 

   

7.  Bókun frá Gunnhildi Björgu Elíasdóttur, Þingeyri.

Gunnhildur Björk Elíasdóttir fulltrúi foreldra mætti ekki. Gunnhildur óskaði eftir í símtali að bókað yrði að ástæðan fyrir því að hún mætti ekki væri sú að þegar hún tók að sér að vera áheyrnarfulltrúi var henni sagt að greitt yrði fyrir akstur og fundarsetur. Þar sem að svo er ekki telur hún sér ekki fært að gegna starfinu og er því hætt sem áheyrnarfulltrúi.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00

 

 

Helga Dóra Kristjánsdóttir

 

Ólöf Hildur Gísladóttir

Gísli Halldór Halldórsson

 

Sigurlína Jónasdóttir

Margrét Halldórsdóttir

 

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?