Fræðslunefnd - 322. fundur - 8. ágúst 2012

Dagskrá:

1.

2012070004 - Ráðning skólastjóra við Grunnskólann á Suðureyri

 

Lögð fram trúnaðargögn er varða ráðningu skólastjóra Grunnskólans á Suðureyri.

Nefndin leggur til við bæjarstjóra að Snorri Sturluson verði ráðinn, sem er í samræmi við niðurstöðu Capacent.

 

   

2.

2008060041 - Fundargerðir skólanefndar T.Í. 2008 -

 

Lögð fram til kynningar fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Ísafjarðar frá 13. júní s.l..

 

   

3.

2011070005 - Skýrslur 2006-2011

 

Lögð fram til kynningar skýrsla um starfsemi Tónlistarskóla Ísafjarðar skólaárið 2011-2012.

Nefndin þakkar fyrir greinargóða skýrslu.

 

   

4.

2011070005 - Skýrslur 2006-2011

 

Lögð fram til kynningar starfsáætlun Tónlistarskóla Ísafjarðar skólaárið 2012-2013.

 

   

5.

2012080005 - Skóladagatöl

 

Lagt fram til kynningar skóladagatal Tónlistarskóla Ísafjarðar skólaárið 2012-2013.

 

   

 

 

Önnur mál.

a) Sviðsstjóri gerði grein fyrir því að skólastjóri leikskólans Eyrarskjóls hefur sagt starfi sínu lausu. Nefndin þakkar Nannýju Örnu fyrir vel unnin störf.

 

b) Fræðslunefnd felur sviðsstjóra og formanni nefndarinnar að vinna drög að verklagsreglum er varða samskipti tónlistarskóla og sveitarfélags vegna fjárhagsáætlunargerðar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00

 

Helga Dóra Kristjánsdóttir

Auður Helga Ólafsdóttir

Ólöf Hildur Gísladóttir

Gísli Halldór Halldórsson

Benedikt Bjarnason

Margrét Halldórsdóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?