Fræðslunefnd - 321. fundur - 18. júní 2012

 Dagskrá:

1.

2012060034 - Staða sérkennslu í grunnskólunum.

 

Lagt fram minnisblað dagsett 12. júní 2012 frá Sigurlínu Jónasdóttur, skóla- og sérkennslufulltrúa, þar sem fram kemur hvernig sérkennslu er háttað í grunnskólum Ísafjarðarbæjar og einnig hvernig sérfræðiráðgjöf á Skóla- og tómstundasviði er háttað.

 

Fræðslunefnd þakkar greinargóð svör.

 

   

2.

2012040037 – Skólamötuneyti.

 

Lagt fram minnisblað dagsett 15. júní 2012 frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, þar sem fram koma hugmyndir að rekstri skólamötuneytis GÍ og hugmyndir að verði á matarskammti.

 

Fræðslunefnd leggur til við bæjarstjórn að til reynslu verði ráðinn matreiðslumaður til eins árs og að því loknu verði metið hvor leiðin kemur betur út. Þá verði matseðlum breytt í átt að matseðlum leikskólanna og þeir samræmdir eins og hægt er.

 

Önnur mál:

a) Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, sagði frá því að Magnús S. Jónsson, skólastjóri Grunnskólans á Suðureyri, hefði sagt starfi sínu lausu. Staðan verður auglýst sem fyrst.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.

 

Gísli H. Halldórsson, formaður.

Helga Dóra Kristjánsdóttir.                              

Auður Helga Ólafsdóttir.

Ólöf Hildur Gísladóttir.                                    

Benedikt Bjarnason.

Margrét Halldórsdóttir.                                    

Sigurlína Jónasdóttir.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?