Félagsmálanefnd - 406. fundur - 9. febrúar 2016

Guðjón Már Þorsteinsson mætti ekki og enginn í hans stað. Sólveig S. Guðnadóttir mætti ekki og enginn í hennar stað.

 

Dagskrá:

Hildur E. Pétursdóttir mætti til fundar kl. 16:30.

1.  

Trúnaðarmál. - 2011090094

 

Fjögur trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu.

 

Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

 

   

2.  

Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027

 

Lagt fram erindi frá nefndarsviði Alþingis dags. 5. febrúar 2016 þar sem velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um embætti umboðsmanns aldraðra, 14. mál.

 

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar fagnar tillögunni.

 

   

3.  

Úrskurðarnefnd velferðarmála. - 2016020022

 

Lagt fram erindi sem barst með tölvupósti þann 21. janúar 2016 þar sem tilkynnt er um að þann 1. janúar s.l. voru úrskurðar- og kærunefndir sem starfað hafa á málefnasviði velferðarráðuneytisins sameinaðar í eina nefnd sem ber heitið „úrskurðarnefnd velferðarmála“. Um nefndina gilda lög nr. 85/2015.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.  

Fundargerðir 2010-2013 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði - 2010070042

 

Lögð fram fundargerð frá 54. fundi nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

5.  

Fundargerðir þjónustuhóps aldraðra 2007- - 2007030053

 

Lagðar fram fundargerðir þjónustuhóps aldraðra frá fundum 77 til 80.

 

Lagt fram til kynningar.


Margrét Geirsdóttir fór af fundi.

 

   

6.  

Reglur Ísafjarðarbæjar um þjónustuíbúðir á Hlíf og Tjörn. - 2016010028

 

Lögð fram drög að nýjum reglum um þjónustuíbúðir aldraðra í Ísafjarðarbæ. Reglurnar hafa verið í endurskoðun hjá þjónustuhópi aldraðra.

 

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar felur starfsmanni að gera breytingar á reglunum í samræmi við umræður á fundinum. Nefndin samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum og vísar þeim til bæjarstjórnar.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30

 

Gunnhildur Björk Elíasdóttir

 

Helga Björk Jóhannsdóttir

Hildur Elísabet Pétursdóttir

 

Steinþór Bragason

Sædís María Jónatansdóttir

 

Margrét Geirsdóttir

Anna Valgerður Einarsdóttir

 

Þóra Marý Arnórsdóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?