Félagsmálanefnd - 396. fundur - 14. apríl 2015

Dagskrá:

Anna Valgerður Einarsdóttir og Hafdís Gunnarsdóttir kom til fundar þegar síðasta trúnaðarmálið var til umræðu.

1.  

Trúnaðarmál. - 2011090094

 

Fjögur trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd.

 

Trúnaðarmálin rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

 

   

2.  

Samstarfsbeiðni Sólstafa Vestfjarða - 2015040006

 

Lagt er fram bréf Báru Jóhannesdóttur Guðrúnardóttur, verkefnastjóra hjá Sólstöfum Vestfjarða, dags. 8. apríl sl. þar sem óskað er eftir samstarfi við Ísafjarðarbæ.

 

Félagsmálanefnd óskar eftir því að fulltrúar Sólstafa Vestfjarða mæti á næsta fund félagsmálanefndar til þess að ræða efni bréfsins.

 

   

Anna Valgerður Einarsdóttir fór af fundi.

3.  

Niðurstöður 2015 - 2015040016

 

Lagðar fram niðurstöður Rannsóknar og greiningar, annars vegar á högum og líðan ungs fólks í 5.-7. bekk og hins vegar vímuefnakönnun meðal nemenda í 8.-10. bekk.

 

Niðurstöðurnar lagðar fram til kynningar.

 

   

6.  

Fjölskyldumiðstöð á Ísafirði - 2015040022

 

Lagt fram bréf frá Guðlaugu M. Júlíusdóttur þar sem kynnt er ný miðstöð, Fjölskyldumiðstöðin á Ísafirði, fyrir fjölskyldur sem eiga við sálfélagslega erfiðleika að stríða.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.  

Fundargerðir stjórnar BsVest. - 2015030003

 

Lögð fram fundargerð stjórnar BsVest frá 24. mars 2015.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

5.  

Fundargerðir verkefnahóps BsVest. - 2011090092

 

Lagðar fram fundargerðir frá 45. og 46. fundi verkefnahóps BsVest.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:40

 

 

Gunnhildur Björk Elíasdóttir

 

Guðný Harpa Henrysdóttir

Aron Guðmundsson

 

Hildur Elísabet Pétursdóttir

Steinþór Bragason

 

Sædís María Jónatansdóttir

Hafdís Gunnarsdóttir

 

Margrét Geirsdóttir

Anna Valgerður Einarsdóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?