Félagsmálanefnd - 384. fundur - 21. janúar 2014

Félagsmálanefnd þakkar Guðfinnu Hreiðarsdóttur, fráfarandi formanni í félagsmálanefnd, fyrir störf í þágu nefndarinnar. Gunnar Þórðarson tekur sæti sem formaður í stað Guðfinnu. Jafnframt býður félagsmálanefnd Guðnýju Stefaníu Stefánsdóttur velkomna til samstarfs við nefndina.

 

Björn Davíðsson mætti ekki og ekki varamaður í hans stað.

 

Dagskrá:


1. 2012120016 - Fjárhagsaðstoð

Sædís María Jónatansdóttir greindi frá grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar og gerði tillögu að hækkun samkvæmt reglum Ísafjarðarbæjar um fjárhagsaðstoð.

Félagsmálanefnd samþykkir að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar hækki samkvæmt reglum Ísafjarðarbæjar um fjárhagsaðstoð.
 

2. 2012090040 - Húsaleigubætur 2013

Lögð fram tvö bréf, bæði dagsett 7. janúar 2014 frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið skili inn yfirliti yfir greiðslur almennra og sérstakra húsaleigubóta.

Lagt fram til kynningar.
 

3. 2011090092 - Fundargerðir verkefnahóps BSVest.

Lagðar fram fundargerðir verkefnahóps BSVest frá fundum nr. 32. 33 og 34.

Fundargerðir lagðar fram til kynningar. Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir stöðu mála í málefnum fatlaðra hjá sveitarfélaginu og samskiptum við BSVest.
 

4. 2007030053 - Fundargerðir þjónustuhóps aldraðra.

Lagðar fram fundargerðir þjónustuhóps aldraðra frá fundum nr. 73 og 74.

Fundargerðir lagðar fram til kynningar. Félagsmálanefnd felur þjónustuhópi aldraðra að endurskoða reglur um þjónustuíbúðir aldraðra í Ísafjarðarbæ og leggja endurskoðaðar reglur fyrir félagsmálanefnd.
 

5. 2010070042 - Fundargerðir 2010-2013 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði

Lagðar fram fundargerðir nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis frá fundi nr. 33.

Fundargerð lögð fram til kynningar. Félagsmálanefnd lýsir yfir ánægju með framkvæmdir við byggingu hjúkrunarheimilis og fagnar aukinni þjónustu við aldraða í Ísafjarðarbæ.
 

6. 2014010051 - Velferðarráðuneyti - Ýmis erindi 2014

Lagt fram erindi frá velferðarráðuneytinu dags. 7. janúar 2014, þar sem tilkynnt er um endurútgáfu á neyðarkortinu „Við hjálpum“.

Lagt fram til kynningar.
 

7. 2011090094 - Trúnaðarmál.

Fimm trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd.

Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.
 

8. Önnur mál:

a) Námskeið fyrir eldri borgara. Félagmálanefnd felur starfsmönnum að kanna grundvöll fyrir fjármálanámskeið fyrir eldri borgara.

 

b) Reglur Ísafjarðarbæjar um fjárhagsaðstoð. Félagsmálanefnd felur starfsmönnum að koma með tillögur að breyttum reglum um fjárhagsaðstoð.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30

 

Jón Reynir Sigurðsson.

Gunnar Þórðarson.

Rannveig Þorvaldsdóttir.

Anna Valgerður Einarsdóttir.

Harpa Stefánsdóttir.

Margrét Geirsdóttir.

Sædís María Jónatansdóttir.

Hafdís Gunnarsdóttir.

Guðný Stefanía Stefánsdóttir.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?