Félagsmálanefnd - 381. fundur - 8. október 2013

Dagskrá:

1.

2011100019 - Þjónusta við eldri borgara á Flateyri og í Önundarfirði.

 

Þrír fulltrúar úr félagsmálanefnd, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og starfsmenn fjölskyldusviðs fóru á fund við stjórn félags eldri borgara í Önundarfirði.

 

Rætt um þjónustu við eldri borgara á Flateyri og í Önundarfirði.

 

   

2.

2011090094 - Trúnaðarmál.

 

Fjögur trúnaðarmál lögð fram í félagsmálanefnd.

 

Trúnaðarmálin rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

 

   

3.

2013090014 - Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2014.

 

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar og starfsmenn gerðu grein fyrir vinnu við gjaldskrá og fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2014.

 

Umræður um gjaldskrá og fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar. Félagsmálanefnd leggur að bæjarstjórn samþykki framkomna tillögu að gjaldskrá fyrir fjölskyldusvið.

 

   

4.

2013090029 - Húsaleigubætur 2014.

 

Lagt fram erindi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 11. sept. s.l. þar sem tilkynnt er um skil á áætlun á greiðslu húsaleigubóta og sérstakra húsaleigubóta.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

5.

2010050008 – Jafnréttisáætlun.

 

Sviðsstjóri fór yfir ályktun landsfundar jafnréttisnefnda og kynnti jafnréttisviku og jafnréttisþing sem verður 24.október til 1. nóvember.

 

Umræður.

 

   

Björn Davíðsson vék af fundi kl. 17:50 þegar fjárhagsáætlun fyrir fjölskyldusvið var til umræðu.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15

 

 

Guðfinna M Hreiðarsdóttir

 

Jón Reynir Sigurðsson

Gunnar Þórðarson

 

Harpa Stefánsdóttir

Margrét Geirsdóttir

 

Björn Davíðsson

Sædís María Jónatansdóttir

 

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?