Félagsmálanefnd - 379. fundur - 11. júní 2013

Dagskrá:

1.

2011090094 - Trúnaðarmál.

 

Þrjú trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd.

 

Trúnaðarmálin rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

 

   

2.

2013060045 - Stefna Ísafjarðarbæjar í málefnum fatlaðs fólks.

 

Lögð fram drög að stefnu Ísafjarðarbæjar í málefnum fatlaðs fólks.

 

Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti stefnu Ísafjarðarbæjar í málefnum fatlaðs fólks og þakkar starfsfólki fjölskyldusviðs fyrir vel unna greinargerð.

 

   

3.

2010080057 - Stefnumótum í atvinnumálum Ísafjarðarbæjar.

 

Lögð fram drög að atvinnumálastefnu Ísafjarðarbæjar, vinnuskjal frá 24. maí 2013. Bæjarráð hefur óskað eftir umsögn um drögin fyrir 13. júní n.k.

 

Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að atvinnumálastefnu Ísafjarðarbæjar.

 

   

4.

2011040079 - Þjónusta við aldraða á Flateyri og í Önundarfirði.

 

Lögð fram ályktun aðalfundar Félags eldri borgara í Önundarfirði sem haldinn var þann 21.maí s.l.

 

Lagt fram til kynningar og starfsmanni falið að vinna að málinu í samráði við Félag eldri borgara í Önundarfirði.

 

   

5.

2013060037 - Framtíðarþing um farsæla öldrun. - Lokaskýrsla 2013.

 

Lögð fram lokaskýrsla framtíðarþings um farsæla öldrun. Þingið var haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 7. mars s.l.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

6.

2013060044 - Ársskýrsla Starfsendurhæfingar Vestfjarða 2012.

 

Lagður fram ársreikningur Starfsendurhæfingar Vestfjarða fyrir starfsárið 2012.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

7.

2013060035 - Húsfélag Hlífar II, ársreikningur 2012.

 

Lagður fram ársreikningur Húsfélags Hlífar II fyrir árið 2012.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00

 

 

Guðfinna M Hreiðarsdóttir

 

Jón Reynir Sigurðsson

Gunnar Þórðarson

 

Ari Klængur Jónsson

Rannveig Þorvaldsdóttir

 

Anna Valgerður Einarsdóttir

Harpa Stefánsdóttir

 

Sædís María Jónatansdóttir

 

 

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?