Félagsmálanefnd - 371. fundur - 25. september 2012

Dagskrá:

1.

2011090093 - Breyting á skipan í félagsmálanefnd.

 

Lagt fram bréf dags. 10. sept. s.l. frá Þorleifi Pálssyni, bæjarritara Ísafjarðarbæjar, þar sem tilkynnt er um breytingu á aðal- og varafulltrúa Í-lista í félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar. Ari Klængur Jónsson tekur sæti sem aðalmaður í félagsmálanefnd í stað Jónu Benediktsdóttur og Jóna tekur sæti sem varamaður í stað Ara Klængs.

 

Félagsmálanefnd þakkar Jónu Benediktsdóttur fyrir samvinnu á tímabilinu og býður Ara Klæng velkominn til samstarfs.

 

   

2.

2011090094 - Trúnaðarmál.

 

Fjögur trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd.

 

Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

 

   

3.

2012090040 - Almennar húsaleigubætur 2013.

 

Lagt fram bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 5. september s.l., þar sem óskað er eftir upplýsingum um áætlun á heildargreiðslum sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum fjárhagsárið 2013. Jafnframt lögð fram áætlun Ísafjarðarbæjar um greiðslur almennra húsaleigubóta á árinu 2013, en áætlunin miðast við grunnfjárhæðir.

 

Félagsmálanefnd samþykkir framkomnar tillögur starfsmanna um áætlun húsaleigubóta fyrir árið 2013.

 

   

4.

2012090040 - Sérstakar húsaleigubætur 2013.

 

Lagt fram bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 5. september s.l., þar sem óskað er eftir upplýsingum um áætlun á heildargreiðslum sveitarfélaga á sérstökum húsaleigubótum fjárhagsárið 2013. Jafnframt lögð fram áætlun Ísafjarðarbæjar um greiðslur sérstakra húsaleigubóta á árinu 2013.

 

 Félagsmálanefnd samþykkir tillögu starfsmanna um áætlun sérstakra húsaleigubóta fyrir árið 2013.

 

   

5.

2012020063 - Byggðasamlag. - Ýmis erindi 2012.

 

Lagt fram bréf dags. 13. september s.l., frá Arnheiði Jónsdóttur er varðar drög að reglum Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks um styrki til náms- og verkfærakaupa fatlaðs fólks samkv. lögum nr. 59/1992. Óskað er eftir umsögn félagsmálanefndar um drögin.

 

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar gerir ekki athugasemdir við drögin og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að hún samþykki reglurnar.

 

   

6.

2012090016 - Sumardvöl í Reykjadal 2012. - Styrkbeiðni.

 

Lagt fram bréf dags. 20. ágúst s.l. frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra þar sem óskað er eftir þátttöku í kostnaði við rekstur sumarbúða fyrir fötluð börn og ungmenni. Styrkbeiðnin nemur kr. 131.400,-.

 

Félagsmálanefnd samþykkir erindið og óskar eftir að það bókist á 02-89-9951.

 

   

7.

2012090038 - Umsókn um að gerast dagforeldri.

 

Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur dags 10. september s.l. þar sem Una Lára Waage, óskar eftir leyfi til daggæslu barna í leikskólanum Bakkaskjóli í Hnífsdal.

 

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar samþykkir að veita umsækjanda leyfi til daggæslu í heimahúsi á grundvelli greinargerðar Sigurlínu. Leyfið verði endurskoðað að einu ári liðnu.

Dagforeldrinu er heimilað að gæta fjögurra barna frá sex mánaða aldri. Ekki er heimilt að á hverjum tíma séu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri í gæslu, skv. reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005.

 

   

8.

2012090039 - Umsókn um að gerast dagforeldri.

 

Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur dags 10. september s.l. þar sem Þórunn Halldórsdóttir óskar eftir leyfi til að starfa sem dagforeldri með Auði Helgadóttur, á heimili Auðar. Fyrir liggja samþykkt vottorð.

 

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir umsækjanda leyfi til daggæslu í heimahúsi á grundvelli greinargerðar Sigurlínu. Leyfið verði endurskoðað að einu ári liðnu.

Dagforeldrinu er heimilað að gæta fjögurra barna frá sex mánaða aldri. Ekki er heimilt að á hverjum tíma séu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri í gæslu, skv. reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005.

 

   

9.

2012090082 - Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar 2013.

 

Fjárhagsáætlun fyrir fjölskyldusvið Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2013.

 

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun á sviðinu fyrir árið 2013.

 

   

10.

2012090008 - Hagir og líðan ungs fólks í Ísafjarðarbæ 2012.

 

Lögð fram skýrsla Rannsóknar og greiningar um hagi og líðan ungs fólks í Ísafjarðarbæ 2012.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50

 

Guðfinna M Hreiðarsdóttir

Jón Reynir Sigurðsson

Gunnar Þórðarson

Ari Klængur Jónsson

Rannveig Þorvaldsdóttir,

Anna Valgerður Einarsdóttir,

Harpa Stefánsdóttir

Margrét Geirsdóttir

Sædís María Jónatansdóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?