Félagsmálanefnd - 368. fundur - 8. maí 2012

Dagskrá:

1.

2011090094 - Trúnaðarmál.

 

Eitt trúnaðarmál lagt fram til umfjöllunar í félagsmálanefnd.

 

Trúnaðarmálið afgreitt og fært til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

 

   

2.

2012010026 - Þjónustuíbúðir á Tjörn, Þingeyri.

 

Lagt fram minnisblað varðandi öryggisvakt í þjónustuíbúðunum að Tjörn á Þingeyri. Fastur kostnaður vegna öryggisvaktarinnar er alls kr. 730.000,- en að auki gæti bæst við kostnaður vegna útkalla.

 

Félagsmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði tillaga um aukafjárveitingu vegna Tjarnar að upphæð kr. 730.000,- hið minnsta, þar sem ekki var gert ráð fyrir sumarlokun hjúkrunarheimilisins á Tjörn við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.

 

   

3.

2010070042 - Fundargerðir.  - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði.

 

Lögð fram fundargerð 16. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.

2012040034 - Skýrsla um félagsþjónustu fyrir árið 2011.

 

Lögð fram samantekt úr skýrslum um félagsþjónustu frá árunum 2008 til 2011.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

5.

2011090092 - Fundargerðir verkefnahóps BSVest.

 

Frestað til næsta fundar félagsmálanefndar.

   

 

   

6. Önnur mál.

a) Ársskýrsla og ársreikningur Starfsendurhæfingar Vestfjarða, sem hægt er að skoða á vef starfsendurhæfingarinnar, sev.is.

Lagt fram til kynningar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40.

 

 

Guðfinna M Hreiðarsdóttir.

Gunnar Þórðarson.

Edda Björk Magnúsdóttir.

Rannveig Þorvaldsdóttir.

Jóna Benediktsdóttir.

Sædís María Jónatansdóttir.

Margrét Geirsdóttir.

Anna Valgerður Einarsdóttir.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?