Félagsmálanefnd - 367. fundur - 17. apríl 2012

Dagskrá:

1.

2010050008 - Jafnréttisáætlun.

 

Lögð fram drög að jafnréttisstefnu Ísafjarðarbæjar ásamt drögum að framkvæmdaáætlun fyrir stefnuna á árunum 2012-2014.

 

Félagsmálanefnd felur starfsmönnum að tryggja að allar nefndir fái drögin til umsagnar svo fljótt sem auðið er og að umsögnum hafi verið skilað í síðasta lagi þann 25. maí n.k.

 

   

2.

2012040011 - Leyfi til daggæslu í heimahúsi.

 

Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur dags. 29. mars 2012 þar sem Jóna Dagbjört Guðmundsdóttir, Seljalandsvegi 30, Ísafirði, óskar eftir leyfi til daggæslu barna í heimahúsi. Fyrir liggja samþykkt vottorð.

 

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir umsækjanda leyfi til daggæslu í heimahúsi á grundvelli greinargerðar Sigurlínu.  Leyfið verði endurskoðað að einu ári liðnu.

 

Dagforeldrinu er heimilað að gæta fjögurra barna, frá 6 mánaða aldri. Ekki er heimilt að á hverjum tíma séu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri.

 

   

3.

2012010026 - Þjónustuíbúðir á Tjörn.

 

Rætt um sumarlokanir Heilbrigðisstofunar Vestfjarða á hjúkrunarheimilinu Tjörn á Þingeyri sumarið 2012. Lokunin mun vara í þrjá mánuði. Sædís María Jónatansdóttir kynnti nefndinni möguleika á þjónustu Ísafjarðarbæjar við íbúa í þjónustuíbúðum sveitarfélagsins að Tjörn á Þingeyri.

 

Félagsmálanefnd felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu og leggja frekari upplýsingar fyrir næsta fund nefndarinnar. Félagsmálanefnd vill vekja athygli á að í fjárhagsáætlun var ekki gert ráð fyrir sumarlokun á Tjörn sumarið 2012 og þeim kostnaði sem af henni hlýst.

 

   

4.

2012010081 - Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2012.

 

Lagt fram bréf frá Velferðarráðuneytinu dags. 12. apríl 2012 um úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2012. Ísafjarðarbær hlaut styrk að fjárhæð kr. 100.000,- til að bæta vinnuaðstöðu í mötuneytinu á Hlíf.

 

Félagsmálanefnd þakkar styrkinn.

 

   

5.

2012040033 - Þjónusta við fötluð börn sumarið 2012.

 

Rætt um sumarþjónustu við fötluð börn sumarið 2012. Í ljósi meiri þarfar fyrir sumarþjónustu en gert var ráð fyrir í vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2012 er óskað eftir auknu fjármagni til félagslegrar liðveislu, liðar 02-520.

 

Félagsmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði tillaga um aukið fjármagn sem nemur kr. 1.185.803,- vegna sumarþjónustu við fötluð börn sumarið 2012.

 

   

6.

2010070042 - Fundargerðir 2010/2011 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði

 

Lögð fram fundargerð 15. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði.

 

Umræður um fundargerðina.

 

   

7.

2012040034 - Skýrsla um félagsþjónustu fyrir árið 2011.

 

Lögð fram skýrsla um félagsþjónustu í Ísafjarðarbæ fyrir árið 2011

 

Starfsfólki fjölskyldusviðs er falið að bera saman skýrslur síðustu þriggja ára og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar.

 

   

8.

2011090094 - Trúnaðarmál.

 

Fjögur trúnaðarmál lögð fram í félagsmálanefnd.

 

Trúnaðarmál afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

 

   

Önnur mál:

A) 2010-09-0013. Gunnar Þórðarson lagði fram fyrirspurn um kostnað sem féll á Ísafjarðarbæ vegna yfirtöku á málefnum fatlaðra á árinu 2011. Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, gerði grein fyrir kostnaðinum.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10

 

Guðfinna M Hreiðarsdóttir.

Jón Reynir Sigurðsson.

Gunnar Þórðarson.

Rannveig Þorvaldsdóttir.

Jóna Benediktsdóttir.

Sædís María Jónatansdóttir.

Harpa Stefánsdóttir.

Anna Valgerður Einarsdóttir.

Margrét Geirsdóttir.

Kristrún Helga Ólafsdóttir.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?