Félagsmálanefnd - 353. fundur - 15. febrúar 2011

Mætt voru: Guðfinna Hreiðarsdóttir, formaður, Gunnar Þórðarson, Jón Reynir Sigurðsson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Rannveig Þorvaldsdóttir. Jafnframt sátu fundinn Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar, Anna Valgerður Einarsdóttir, Sædís María Jónatansdóttir, Harpa Stefánsdóttir og Sigfríður Hallgrímsdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu.

Sædís María Jónatansdóttir ritaði fundargerð.

 

Þetta var gert:

 

1.      Trúnaðarmál.

Fimm trúnaðarmál rædd og fært til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

 

2.      Myndun samráðshóps áfallahjálpar í lögregluumdæmum landsins. 

2011-02-0025.

Lagt fram bréf frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða dagsett 27. janúar sl., ásamt afriti af bréfi Samráðshóps áfallahjálpar í SST dagsettu 29. desember 2010. Í bréfunum er fjallað um myndun samráðshópa áfallahjálpar í  lögregluumdæmum landsins.

Lagt fram til kynningar.

 

3.      Starfsmarkmið vegna stefnu Ísafjarðarbæjar í félags- og velferðarmálum. 

2007-12-0001.

Lögð fram starfsmarkmið félagsmálanefndar vegna stefnu Ísafjarðarbæjar í félags- og velferðarmálum fyrir árið 2011.

Félagsmálanefnd samþykkir starfsmarkmiðin fyrir sitt leyti.

 

4.      Umsókn um daggæsluleyfi.  2011-02-0034.

Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur, leikskóla- og daggæslufulltrúa, þar sem Auður Helgadóttir kt. 060878-4209, sækir um leyfi til daggæslu í heimahúsi.

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir viðkomandi leyfi til daggæslu í heimahúsi á grundvelli greinargerðarinnar.

 

5.      Fjárhagsaðstoð. 

Kynnt skýrsla um ný neysluviðmið fyrir heimili á Íslandi, sem kynnt eru á heimasíðu Velferðarráðuneytisins.  

 

6.      Rannsókn á ofbeldi gegn konum: Reynsla kvenna á aldrinum 18-80 ára á Íslandi. 2011-02-0013.

Lögð fram til kynningar skýrslan Rannsókn á ofbeldi gegn konum: Reynsla kvenna á aldrinum 18-80 ára á Íslandi, sem unnin var af þeim Elísabetu Karlsdóttur og Ásdísi A. Arnalds fyrir Félags- og tryggingamálaráðuneytið í desember 2010.

 

7.      Ungt fólk utan skóla 2009.   2011-01-0039.

Lögð fram til kynningar skýrslan Ungt fólk utan skóla 2009: Félagsleg staða 16-20 ára ungmenna á Íslandi, sem ekki stunda nám við framhaldsskóla árið 2009, sem greinir frá niðurstöðum úr rannsókn er framkvæmd var 2009 af Rannsóknum og greiningu fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg.

 

8.      Önnur mál.

A.    Félagsmálanefnd fór og skoðaði nýtt húsnæði Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar á annarri hæð í Stjórnsýsluhúsinu.  Starfsemin mun hefjast í nýju húsnæði á næstu dögum.

 

Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 17:10

 

Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, formaður

Gunnar Þórðarson                                                                 

Jón Reynir Sigurðsson      

Rannveig Þorvaldsdóttir                                                             

Ragnhildur Sigurðardóttir

Sædís María Jónatansdóttir                                                           

Anna V. Einarsdóttir

Sigfríður Hallgrímsdóttir                                       

Harpa Stefánsdóttir

Margrét Geirsdóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?