Félagsmálanefnd - 313. fundur - 23. maí 2008

Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Rannveig Þorvaldsdóttir, Hrefna R. Magnúsdóttir, Ásthildur Gestsdóttir og  Elín Halldóra Friðriksdóttir. Jafnframt sátu fundinn Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu, Anna Valgerður Einarsdóttir, Guðný Steingrímsdóttir og Sædís María Jónatansdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu.  Sædís María Jónatansdóttir ritaði fundargerð.



Þetta var gert:



1. Liðveisla sumarið 2008.  2003-03-0106.


Rætt um liðveislu fyrir fötluð börn sumarið 2008 og um aukna samvinnu Ísafjarðarbæjar og Svæðisskrifstofu málaefna fatlaðra á Vestfjörðum.


Félagsmálanefnd samþykkir að sveitarfélagið bjóði upp á þjónustu í formi liðveislu/dagþjónustu, í allt að 8 klst. á dag í júní og júlí 2008. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að dagþjónustu við fötluð börn á sumrin.



2. Trúnaðarmál.


Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálamöppu félagsmálanefndar.


Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 13:05.


Gísli H. Halldórsson, formaður.


Elín Halldóra Friðriksdóttir.


Rannveig Þorvaldsdóttir.


Hrefna R. Magnúsdóttir.


Ásthildur Gestsdóttir.


Sædís María Jónatansdóttir, ráðgjafi.


Guðný Steingrímsdóttir, félagsráðgjafi.


Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu.


Anna Valgerður Einarsdóttir, ráðgjafi.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?