Félagsmálanefnd - 279. fundur - 6. febrúar 2007

Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Hrefna R. Magnúsdóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir, Ásthildur Gestsdóttir og Elín Halldóra Friðriksdóttir.  Jafnframt sat fundinn Ingibjörg María Guðmundsdóttir, yfirmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.


Ingibjörg María Guðmundsdóttir ritaði fundargerð.


 


Þetta var gert:



1. Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar.  2006-03-0038


Teknir fyrir minnispunktar frá nefndarfulltrúum um markmið og stefnu vegna aðalskipulags.


Félagsmálanefnd frestar umfjöllun til næsta fundar.



2. Reglugerð um takmarkanir á tóbaksreykingum.   2007-01-0076


Lagt fram bréf frá félagsmálanefnd Alþingis, dagsett 22. janúar s.l., þar sem óskað er eftir umsögn Ísafjarðarbæjar, um reglugerð um takmarkanir á tóbaksreykingum og reglugerð um smásölu tóbaks.


Félagsmálanefnd gerir athugasemd við reykingabann á svölum hjúkrunar- og dvalarheimila. Nefndin gerir einnig athugasemd við 4. og 6.mgr. 2.gr. reglu-gerðarinnar og telur að reglugerðin eigi að leyfa afdrep fyrir reykingar í fangelsum og hjúkrunar- og dvalarheimilum.



3. Önnur mál.


a. Styrkur Ísafjarðarbæjar til reksturs miðstöðvar fyrir fólk er býr við skert lífsgæði.  2006-11-0068.


Upplýst um afgreiðslu bæjarstjórnar 1. febrúar s.l., þar sem samþykkt var að greiða  kr. 50.000.- á mánuði í leigukostnað í 11,5 mánuði árið 2007.


b. Sérstakar húsaleigubætur. 2007-01-0072.


Lögð fram tilkynning sem sett var á vef Ísafjarðarbæjar í dag vegna sérstakra húsaleigubóta.


Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 17:10.


Gísli H. Halldórsson, formaður.


Elín Halldóra Friðriksdóttir.    


Rannveig Þorvaldsdóttir.    


Hrefna R. Magnúsdóttir.    


Ásthildur Gestsdóttir.         


Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu. 





Er hægt að bæta efnið á síðunni?