Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 96. fundur - 3. apríl 2008

Mættir voru: Kristjana Sigurðardóttir, formaður, Björn Jóhannesson, Kristrún Hermannsdóttir,  Bryndís Friðgeirsdóttir og Barði Ingibjartsson. Að auki sátu fundinn Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu, sem og Anna Valgerður Einarsdóttir, Guðný Steingrímsdóttir og Sædís M. Jónatansdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Fundarritari:  Anna V. Einarsdóttir.



1. Trúnaðarmál.


Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók barnaverndarnefndar.



2. Barnasáttmálinn.   2008-03-0025.


Lagt fram til kynningar bréf frá UNICEF Ísland þar sem greint er frá því að UNICEF Ísland hafi gefið út bók um Barnasáttmála Sameinuðuþjóðanna í ritstjórn Þórhildar Líndal.



3. Sískráning barnaverndarmála í febrúar og mars 2008.


Lagt fram til kynningar yfirlit um sískráningu barnaverndarmála í febrúar og mars 2008.  Í febrúar voru 20 tilkynningar til barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum.  Í mars voru tilkynningarnar sjö.



4. Staða barnaverndarmála.


Lagt fram til kynningar yfirlit barnaverndarmála fyrir árið 2007.  Heildarfjöldi tilkynninga til barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum árið 2007 var 163 um 117 börn.



5. Önnur mál.


Fimmta ráðstefna Norræna félagsins gegn illri meðferð á börnum verður í Reykjavík


18. - 21. maí nk. 


Barnaverndarnefnd samþykkir að senda starfsmann nefndarinnar á ráðstefnuna.


Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt.  Fundi slitið kl. 12:30.


Kristjana Sigurðardóttir, formaður.


Björn Jóhannesson.      


Barði Ingibjartsson. 


Bryndís Friðgeirsdóttir.     


Kristrún Hermannsdóttir.


Margrét Geirsdóttir.                  


Anna Valgerður Einarsdóttir. 


Sædís M. Jónatansdóttir.     


Guðný Steingrímsdóttir.





Er hægt að bæta efnið á síðunni?