Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 90. fundur - 15. nóvember 2007

Mættir voru: Kristjana Sigurðardóttir, formaður, Björn Jóhannesson, Barði Ingibjartsson og Kristrún Hermannsdóttir. Bryndís Friðgeirsdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Guðrún Rakel Brynjólfsdóttir.   Auk þess sátu fundinn Anna Valgerður Einarsdóttir, Sædís María Jónatansdóttir og Guðný Steingrímsdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu. 


Fundarritari:  Sædís María Jónatansdóttir.


Kristjana Sigurðardóttir vék af fundi kl. 11:05.



1. Trúnaðarmál.


Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók barnaverndarnefndar. Björn Jóhannesson vék af fundi undir þessum lið.



2. Framkvæmdaáætlun.


Farið yfir framkvæmdaáætlun barnaverndarnefndar fyrir tímabilið 2006 til 2010.  Afgreiðslu frestað til næsta fundar.



3. Sískráning fyrir október 2007.


Lagt fram til kynningar yfirlit yfir sískráningu barnaverndarmála á norðanverðum Vestfjörðum í október 2007.  Í mánuðinum komu 25 tilkynningar til barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum.



4. Yfirlit yfir barnaverndarmál í október 2007.


Lagt fram yfirlit um stöðu barnaverndarmála í október 2007.


Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt.  Fundi slitið kl. 12:15.


Kristjana Sigurðardóttir, formaður.


Barði Ingibjartsson.      


Björn Jóhannesson. 


Guðrún Rakel Brynjólfsdóttir.    


Kristrún Hermannsdóttir.


Anna Valgerður Einarsdóttir.     


Sædís María Jónatansdóttir.


Guðný Steingrímsdóttir.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?