Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 124. fundur - 6. júní 2013

Dagskrá:

 

1.

2003050057 - Ársskýrslur Barnaverndarnstofu

 

Lagðar fram samtölur 2012 sem eru árskýrsla barnaverndarnefnda til Barnaverndarstofu. Á árinu 2012 komu 157 tilkynningar til barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum um 93 börn.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

2.

2013010005 - Barnaverndarstofa - Ýmis erindi 2013

 

Lagt fram bréf frá Barnaverndarstofu dags. 25. janúar 2013 þar sem Barnaverndarstofa óskar eftir fundi með nefndinni á haustmánuðum 2013. Óskað er eftir tillögu nefndarinnar um fundartíma og þess farið á leit að nefndir á landsbyggðinni samræmi fundartíma við þær nefndir er standa þeim næst.

 

Lagt fram til kynningar. Starfsmanni falið að ræða við aðrar nefndir og finna fundartíma með Barnaverndarstofu.

 

   

3.

2013060017 - Sískráning 2013

 

Lögð fram sískráning fyrir janúar til mars 2013.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.

2013010005 - Barnaverndarstofa - Ýmis erindi 2013

 

Lagt fram bréf frá Barnaverndarstofu dags. 21. janúar 2013 þar sem Barnaverndarstofa tilkynnir um að hætt sé að bjóða upp á hópmeðferð fyrir börn sem búa við þær aðstæður að ofbeldi hefur verið þáttur í heimilislífi þeirra.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:50.

 

Hafdís Gunnarsdóttir                            Rósa Helga Ingólfsdóttir

Bryndís G Friðgeirsdóttir                      Sædís María Jónatansdóttir

Anna Valgerður Einarsdóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?