Bæjarráð - 942. fundur - 5. september 2016
Dagskrá:
1. |
Thai Koon, umsókn um rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Lagt er fram bréf Magnúsar Salvarssonar, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 12. júlí sl., þar sem óskað er eftir umsögn á umsókn Silfurs og Salts ehf., um endurnýjun á rekstrarleyfi veitingastaðarins Thai Koon, dags. 6. júlí sl. Umsögn Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 2. september er enn fremur meðfylgjandi. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
||
|
||
2. |
Heimabær, umsókn um rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Lagt er fram bréf Magnúsar Salvarssonar, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 11. júlí sl., þar sem óskað er eftir umsögn á umsókn Heimabæjar, Arnardal um endurnýjun á rekstrarleyfi veitingastaðar/samkomusals, dags. 8. júlí sl. Umsögn Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 2. september er enn fremur meðfylgjandi. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
||
|
||
3. |
Úttekt á reglum um rekstrarleyfi gististaða - 2016060047 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, dags. 25. ágúst sl., þar sem lögð eru fram fyrstu drög að reglum um umsagnir við umsóknum um rekstrarleyfi gististaða. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
Breytingar varðandi fjármögnun á rekstri Vesturafls - 2016060091 |
|
Lagt er fram bréf Hörpu Guðmundsdóttur, forstöðumanns Vesturafls, dags. 24. ágúst sl. með beiðni um styrk til reksturs Vesturafls 2017. |
||
Bæjarráð vísar málinu til vinnslu fjárhagsáætlunar 2017. |
||
|
||
5. |
Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047 |
|
Fjárfestingar ársins 2017. |
||
Umræður fóru fram um fjárfestingaráætlun ársins 2017. Umræður verða teknar upp aftur síðar. |
||
|
||
6. |
Fræðslunefnd - 371 - 1608014F |
|
Lögð er fram fundargerð 371. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 1. september sl., fundargerðin er í 5 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 33 - 1608005F |
|
Lögð er fram fundargerð 33. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 30. ágúst sl., fundargerðin er í 7 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |