Bæjarráð - 937. fundur - 11. júlí 2016

 Dagskrá:

1.  

Ósk um stuðning með börnum - 2016070017

 

Lagt er fram minnisblað Margrétar Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 6. júlí sl., með beiðni leikskólans Eyrarskjóls um stuðning.

 

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera viðauka við fjárhagsáætlun 2016 og leggja málið aftur fyrir nefndina.

 

 

Gestir

 

Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - 08:10


Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri, yfirgefur fundinn kl. 08:22.

 

   

2.  

Þjónusta Flugfélags Íslands við Ísafjarðarflugvöll - 2016010005

 

Lagt er fram svarbréf Sigurbergs Björnssonar, f.h. innanríkisráðherra, dags. 7. júlí sl. varðandi þjónustu Flugfélags Íslands við Ísafjarðarflugvöll.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

3.  

Mánaðaryfirlit 2016 - 2016050081

 

Lagt er fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 8. júlí sl., ásamt árshlutareikningi fyrsta ársfjórðungs samstæðu Ísafjarðarbæjar.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.  

Mýrarboltinn 2016-2018 - 2016070028

 

Umræður um stuðning Ísafjarðarbæjar við Mýrarboltafélag Íslands ehf. 2016.

 

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Mýrarboltafélagið um framlengingu samnings og frekari stuðning við félagið vegna Mýrarboltans 2016.

 

   

5.  

Hvilft, Önundarfirði - leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

 

Að nýju er lögð fram beiðni Rósu Ólafsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 28. apríl sl., um umsögn um nýtt rekstrarleyfi að Hvilft, Önundarfirði, ásamt umsókn dags. 11. apríl og umsögn Axels Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 27. júní sl.

 

Í umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa kemur fram að umsóknin sé í trássi við skipulag Ísafjarðarbæjar. Þar sem ekki er um endurnýjun að ræða sér bæjarráð sér ekki fært að samþykkja veitingu rekstrarleyfisins, en bendir umsækjanda á að hægt er að óska eftir breytingu á skipulagi, sem bæjarráð telur ekki óeðlilegt í þessu tilviki.

 

   

6.  

Edinborg Bistro, Aðalstræti 7 - rekstrarleyfi veitingarstaðar - 2016010026

 

Lögð er fram beiðni Magnúsar Salvarssonar, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, um umsögn, dags. 15. júní sl., um umsókn Sveitasælunnar ehf. um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir veitingastað í flokki III að Aðalstræti 7, Ísafirði, dags. 13. apríl sl., ásamt umsögn Axels Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 30. júní sl.

 

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.

 

   

7.  

Bræðraborg - rekstrarleyfi veitignarhús í flokki II - 2016010026

 

Lögð er fram beiðni Magnúsar Salvarssonar, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, um umsögn, dags. 6. júlí sl., um umsókn Skútusiglinga ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað/kaffihús að Aðalstræti 22B , ódags., ásamt umsögn Axels Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 8. júlí sl.

 

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.

 

   

8.  

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016020019

 

Lagðar eru fram eftirfarandi fundargerðir:
a) Fundargerð 839. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 27. maí sl.
b) Fundargerð 840. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 2. júní sl.
c) Fundargerð 841. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 24. júní sl.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

9.  

Náttúrustofa - ársfundur 2016 - 2016050085

 

Lögð er fram fundargerð ársfundar aðildarsveitarfélaga Náttúrustofu Vestfjarða sem haldinn var 14. júní sl.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:27

 

 

Arna Lára Jónsdóttir

 

Kristján Andri Guðjónsson

Jónas Þór Birgisson

 

Marzellíus Sveinbjörnsson

Gísli Halldór Halldórsson

 

Þórdís Sif Sigurðardóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?