Bæjarráð - 932. fundur - 6. júní 2016

 Dagskrá:

1.  

Almenningssamgöngur 2012-2016 - 2012020018

 

Lagt er fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 2. júní sl., með tillögu að framlengingu samnings um almenningssamgöngur til eins árs.

 

Bæjarráð samþykkir að samningurinn við Vestfirskar ævintýraferðir verði framlengdur til 1. júní 2017.

 

   

2.  

Styrkumsókn Dýrafjarðardaga 2015 og 2016 - 2016050100

 

Lagður er fram tölvupóstur Signýjar Þallar Kristinsdóttur, f.h. Hverfisráðs Þingeyrar, Íbúasamtakanna Átaks, frá 31. maí sl., þar sem óskað er eftir styrk vegna utanumhalds og skipulagningar Dýrafjarðardaga 2015 og 2016.

 

Bæjarráð samþykkir að veita Dýrafjarðardögum 2016 styrk að fjárhæð kr. 250.000,-.

 

   

3.  

Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027

 

Lagt er fram til umsagnar frumvarp umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis til laga um timbur og timburvörur, 785. mál.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.  

Framtíðarsýn í dagvistarmálum Ísafjarðarbæjar. - 2013010070

 

Á 369. fundi fræðslunefndar var staða dagvistarmála og framtíð hennar rædd.

Fræðslunefnd hefur lagt nokkra vinnu í að greina stöðu og möguleika í málefnum leikskóla með það fyrir augum að móta framtíðarsýn í leikskólamálum í Skutulsfirði. Með vinnuskjali skilar fræðslunefnd málinu til bæjarráðs til frekari úrvinnslu.

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

Gestir

 

Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri íþrótta- og tómstundanefndar mætti til fundarins - 08:25


Margrét Halldórsdóttir yfirgaf fundinn kl. 8:50.

 

   

5.  

HSV - ósk um auka íbúðir til hausts 2017 - 2016060009

 

Lagður er fram tölvupóstur Sigríðar Láru Gunnlaugsdóttur, framkvæmdastjóra HSV, frá 3. júní sl., þar sem óskað er eftir 2 íbúðum til viðbótar við samstarfssamninginn fram á haust ársins 2017.

 

Bæjarráð leggur til að íbúðunum verði úthlutað gegn því að HSV greiði 50% af uppsettri leigu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að viðauka vegna þessa og leggja fyrir næsta bæjarráð.

 

   

6.  

Fyrirspurn EFTA um almenningssamgöngur í Ísafjarðarbæ - 2016060008

 

Lagður er fram tölvupóstur Aðalsteins Óskarssonar, f.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga, frá 30. maí sl., ásamt bréfi Astríðar Scheving Thorsteinsson, hjá EFTA, dags. 22. apríl sl., þar sem óskað er upplýsinga um almenningssamgöngur á Íslandi.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

7.  

Fræðslunefnd - 369 - 1605022F

 

Fundargerð 369. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 2. júní sl., fundargerðin er í 8 liðum.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

   

8.  

Íþrótta- og tómstundanefnd - 170 - 1605024F

 

Fundargerð 170. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. júní sl., fundargerðin er í 6 liðum.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

8.2  

2016020047 - Fjárhagsáætlun 2017

 

 

Niðurstaða Íþrótta- og tómstundanefnd - 170

 

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að frítt verði í sund fyrir börn, önnur hækkun taki mið af þeirri hækkun sem bæjarstjórn ákveður. Afsláttur verði á súperpössum séu keyptir tveir eða fleiri. Nefndin hefur áður tekið ákvörðun um að árskort á skíðum verði vetrakort.

 

 

8.6  

2016050095 - Frisbígolfkörfur

 

 

Niðurstaða Íþrótta- og tómstundanefnd - 170

 

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að fundinn verði staður og komið verði upp frisbígolfkörfum í Skutulsfirði, til að byrja með.

 

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:08

 

 

Kristján Andri Guðjónsson

 

Daníel Jakobsson

Nanný Arna Guðmundsdóttir

 

Marzellíus Sveinbjörnsson

Gísli Halldór Halldórsson

 

Þórdís Sif Sigurðardóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?