Bæjarráð - 921. fundur - 7. mars 2016

 Dagskrá:

1.  

XXX. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016020019

 

Boðun XXX. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið verður 8. apríl 2016 í Reykjavík.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

2.  

Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016020019

 

Lagðar eru fram fundargerðir 835. og 836. funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldnir voru 29. janúar sl. og 26. febrúar sl.

 

Bæjarráð tekur undir með Byggðaráði Dalvíkurbyggðar að lausn þurfi að finna á framlagi vegna sölu félagslegra eignaríbúða samhliða nýjum húsnæðisfrumvörpum ríkisstjórnarinnar.

 

   

3.  

Þingsályktunartillaga um endurskoðun laga um lögheimili - 2016010027

 

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendi til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, 32. mál.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.  

Þingsályktunartillaga um hæfisskilyrði leiðsögumanna - 2016010027

 

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi til umsagnar tillögu til þingsályktunar um hæfisskilyrði leiðsögumanna, 275. mál.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

5.  

Snjómokstursreglur og mokstursleiðir í Ísafjarðarbæ - 2011110042

 

Lagt er fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 4. mars sl., um snjómokstursreglur og mokstursleiðir í Ísafjarðarbæ og umsagnir hverfisráða Ísafjarðarbæjar.

 

Bæjarráð vísar tillögum að snjómokstursreglum til bæjarstjórnar.

 

   

6.  

Asahláka í febrúar 2015 - vatnsflóð, lærdómsskýrsla, verksamningur við VSÓ ráðgjöf - 2015020033

 

Lagt er fram bréf Viðars Helgasonar og Sverris Jónssonar, f.h. fjármála- og efnahagsráðherra, dags. 2. mars sl., varðandi fjárframlag til að mæta kostnaði Ísafjarðarbæjar af vatnsflóðum í febrúar 2015.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

7.  

Mánaðaryfirlit 2015 - 2015020081

 

Lagt er fram minnisblað Helgu Ásgeirsdóttur, frá 4. mars sl., með rekstraryfirliti desember 2015 og skatttekjum og launum janúar 2016.

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

Gestir

 

Helga Ásgeirsdóttir - 08:30


Helga yfirgaf fundinn kl. 8:40.

 

   

8.  

Hafnarstjórn - 183 - 1603001F

 

Fundargerð 183. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 1. mars sl., fundargerðin er í 9 liðum.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:40

 

 

Arna Lára Jónsdóttir

 

Kristján Andri Guðjónsson

Daníel Jakobsson

 

Marzellíus Sveinbjörnsson

Þórdís Sif Sigurðardóttir

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?