Bæjarráð - 907. fundur - 16. nóvember 2015
Dagskrá:
1. |
Fasteignagjöld á íbúðir í útleigu til ferðamanna, gististaði - 2015080010 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 10. nóvember sl., í kjölfar beiðnar Jónasar Þórs Birgissonar bæjarfulltrúa, um samantekt á skráningu gististaða. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna fasteignaeigendum breytingu á álagningu fasteignaskatts af gistiheimilum, þar sem gjaldaflokknum er breytt úr íbúðahúsnæði í atvinnuhúsnæði. |
||
|
||
2. |
Tilnefning fulltrúa í öldungaráð Ísafjarðarbæjar - 2014080062 |
|
Óskað er eftir tilnefningu bæjarstjórnar á tveim fulltrúum og tveim til vara í öldungaráð Ísafjarðarbæjar, sbr. samþykktir fyrir öldungaráð Ísafjarðarbæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 19. júní sl. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Umsókn um rekstrarstyrk - 2015110014 |
|
Harpa Guðmundsdóttir, forstöðukona Vesturafls, mætir til fundarins f.h. Vesturafls, að beiðni 906. fundar bæjarráðs. |
||
Harpa gerði grein fyrir rekstri Vesturafls. |
||
|
||
Gestir |
||
Harpa Guðmundsdóttir mætir til fundarins undir þessum lið - 09:00 |
||
|
||
4. |
Land undir frístundahúsabyggð í Dýrafirði - 2015110025 |
|
Lagt er fram minnisblað Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 13. nóvember sl. varðandi beiðni um land undir frístundahúsabyggð í Dýrafirði. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gerð verði viljayfirlýsing um að svæðinu F25 verði útdeilt til óstofnaðs félags PK-arkitekta ehf. til deiliskipulagsgerðar fyrir 5 lóðir fyrir frístundahús. |
||
|
||
5. |
Sumarlokanir Eyrarskjóls og Sólborgar 2015 - 2015090088 |
|
Tillaga fræðslunefndar um að sumarlokun leikskólanna Eyrarskjóls og Sólborgar verði með sama hætti og sumarið 2015 er tekin upp að nýju. |
||
Málið verður lagt fyrir næsta fund bæjarstjórnar. |
||
|
||
6. |
Leikskóladeild fyrir 5 ára börn í Skutulsfirði, ungbarnadeild og fleiri lausnir í dagvistarmálum - 2013010070 |
|
Tillaga fræðslunefndar um að Bakkaskjól verði opnað ef þörf krefur frá upphafi árs 2016 er aftur tekin fyrir þar sem bæjarráð hefur fengið frekari upplýsingar og fund með formanni fræðslunefndar og leikskólastjórum. |
||
Málið verður lagt fyrir næsta fund bæjarstjórnar. |
||
|
||
7. |
Ránargata 10, kauptilboð - 2015100055 |
|
Lagt er fram tilboð í fasteignina Ránargötu 10, Flateyri, sem trúnaðarmál. |
||
Bæjarráð samþykkir framlagt kauptilboð. |
||
|
||
8. |
Hjúkrunarheimili á Ísafirði - 2011120009 |
|
Lagt er fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 13. nóvember sl. vegna kostnaðar við Hjúkrunarheimilið Eyri, árið 2015. Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að leita fjármögnunar á þeim kostnaði sem fór fram úr fjárhagsáætlun 2015. |
||
Þegar hefur verið óskað eftir skýringum á framúrkeyrslunni, bæjarráð óskar eftir að fá upplýsingar þar um eins fljótt og auðið er. |
||
|
||
Gestir |
||
Brynjar Þór Jónasson, sviðstjóri umhverfis- og eignasviðs, mætti til fundar undir þessum lið - 08:47 |
||
|
||
|
||
9. |
12. viðauki við fjárhagsáætlun 2015 - 2015010094 |
|
Lögð eru fram frumdrög að viðauka 12 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2015, vegna lífeyrisskuldbindinga. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera lokadrög að viðaukanum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann. |
||
|
||
10. |
9 mánaða uppgjör Ísafjarðarbæjar árið 2015 - 2015080056 |
|
Lagt er fram 9 mánaða uppgjör Ísafjarðarbæjar árið 2015. |
||
Bæjarstjóri gerði grein fyrir 9 mánaða uppgjöri Ísafjarðarbæjar 2015. |
||
|
||
11. |
Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048 |
|
Fjárhagsáætlun 2016. |
||
Fyrri umræður um fjárhagsáætlun 2016 fara fram á næsta bæjarstjórnarfundi. |
||
|
||
12. |
Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, framkvæmdaleyfi. - 2013030023 |
|
Lögð er fram fundargerð 34. verkfundar Framkvæmdasýslu ríkisins, sem haldinn var 6. nóvember sl., vegna ofanflóðavarna Ísafirði, byggðar neðan Gleiðarhjalla. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
13. |
Náttúrustofa - Ýmis erindi og fundargerðir 2014-2015 - 2014030020 |
|
Lögð er fram til kynningar fundargerð eigendafundar aðildarfélaga Náttúrustofu Vestfjarða frá 4. nóvember sl. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
14. |
Náttúrustofa - Ýmis erindi og fundargerðir 2014-2015 - 2014030020 |
|
Lögð er fram til kynningar 96. fundargerð stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða frá 20. ágúst sl. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
15. |
Náttúrustofa - Ýmis erindi og fundargerðir 2014-2015 - 2014030020 |
|
Lögð er fram til kynningar 97. fundargerð stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða frá 24. september sl. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
16. |
Náttúrustofa - Ýmis erindi og fundargerðir 2014-2015 - 2014030020 |
|
Lögð er fram til kynningar 98. fundargerð stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða frá 3. nóvember sl. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
17. |
Íþrótta- og tómstundanefnd - 162 - 1511006F |
|
Fundargerð 162. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 6. nóvember sl., fundargerðin er í 1 lið. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
18. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 445 - 1510017F |
|
Fundargerð 445. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 11. nóvember sl., fundargerðin er í 4 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:02
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |