Bæjarráð - 890. fundur - 22. júní 2015

Dagskrá:

1.  

5. viðauki við fjárhagsáætlun 2015 - 2015010094

 

Lögð eru fram drög að 5. viðauka við fjárhagsáætlun 2015 varðandi ráðningu í tímabundið hlutastarf á tæknisviði.
Drög að viðaukanum voru lögð fyrir 878. fund bæjarráðs sem lagði til við bæjarstjórn að viðaukinn yrði samþykktur. Bæjarstjórn er nú komin í sumarleyfi og skal bæjarráð taka afstöðu til viðaukans.

 

Bæjarráð samþykkir viðaukann.

 

   

2.  

6. viðauki við fjárhagsáætlun 2015 - 2015010094

 

Lagður er fram 6. viðauki við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2015 vegna tómstundarútu og framlags til LÚR.
Drög að viðaukanum voru lögð fyrir 888. fund bæjarráðs sem lagði til við bæjarstjórn að viðaukinn yrði samþykktur. Bæjarstjórn er nú komin í sumarleyfi og skal bæjarráð taka afstöðu til viðaukans.

 

Bæjarráð samþykkir viðaukann.

 

   

3.  

7. viðauki við fjárhagsáætlun 2015 - 2015010094

 

Lagður er fram 7. viðauki við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2015 vegna leigu á geymslu fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar.
Drög að viðaukanum voru lögð fyrir 888. fund bæjarráðs sem lagði til við bæjarstjórn að viðaukinn yrði samþykktur. Bæjarstjórn er nú komin í sumarleyfi og skal bæjarráð taka afstöðu til viðaukans.

 

Bæjarráð samþykkir viðaukann.

 

   

4.  

8. viðauki við fjárhagsáætlun 2015 - 2015010094

 

Lögð eru fram drög að 8. viðauka við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2015 vegna ýmissa leiðréttinga.
Drög að viðaukanum voru lögð fyrir 889. fund bæjarráðs sem lagði til við bæjarstjórn að viðaukinn yrði samþykktur. Bæjarstjórn er nú komin í sumarleyfi og skal bæjarráð taka afstöðu til viðaukans.

 

Bæjarráð samþykkir viðaukann.

 

   

5.  

Bifreiðar í Ísafjarðarbæ, álímingar - 2015020104

 

Lagt er fram bréf Antons Helgasonar, heilbrigðisfulltrúa, f.h. Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, dags. 30. apríl sl., móttekið 18. júní sl., þar sem tilkynnt er um bílaálímingar og hvernig vörslu bifreiða skuli háttað eftir að þær eru teknar í vörslu.

 

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og framkvæmdanefndar.

 

   

6.  

Fundargerðir heilbrigðisnefndar - 2015020104

 

Fundargerð heilbrigðisnefndar 12. júní sl.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

   

7.  

Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 134 - 1506012F

 

Fundargerð 134. fundar barnaverndarnefndar sem haldinn var 18. júní sl., fundargerðin er í 1 lið.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

   

8.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 436 - 1506003F

 

Fundargerð 436. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 18. júní sl., fundargerðin er í 9 liðum.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:30

 

Arna Lára Jónsdóttir

 

Kristján Andri Guðjónsson

Jónas Þór Birgisson

 

Marzellíus Sveinbjörnsson

Gísli Halldór Halldórsson

 

Þórdís Sif Sigurðardóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?